Ibis Styles, Birmingham
Vefsíða hótels

Einfalt og þægilegt hótel á besta stað, í léttu göngufæri við aðalverslunarhverfið, fjölda safna og ráðstefnu- og menningarmiðstöðvar.
Í hótelinu eru 120 tveggja manna herbergi og fjölskylduherbergi með svefnsófa fyrir börn. Allar vistarverur eru innréttaðar á þægilegan og nútímalegan hátt, í líflegum litum. Teppi eru á gólfum. Herbergin eru búin stillanlegri loftkælingu og upphitun, síma og flatskjársjónvarpi með gervihnattarásum. Á baðherbergjum er sturta og baðvörur fylgja. Þráðlaus nettenging er á hótelinu, gestum að kostnaðarlausu.
Létt morgunverðarhlaðborð er í veitingasal með "continental" morgunverði. Ekki er hægt að fá heita rétti. Auk þess er setustofubar í hótelinu þar gott er að hvíla lúin bein á milli verslunar- og skoðunarferða, gæða sér á léttu snarli eða ljúffengum drykk, sem auk þess er hægt að taka með sér upp á herbergið. Í setustofunni er einnig hægt að hella sér upp á kaffi eða te.
Móttakan er opin allan sólarhringinn og starfsfólkið þar aðstoðar við ýmsa þjónustu, eins og þurrhreinsun, strauningu og miðakaup á menningar- og íþróttaviðburði. Í móttökunni er einnig öryggishólf.
Hotel Ibis Styles er frábærlega staðsett í hjarta Birmingham. Fjöldi verslana og veitingastaða er í næsta nágrenni og stutta stund tekur að ganga að mörgum kennileitum borgarinnar, eins og sædýrasafninu, vísindasafninu, dómkirkjunni og ICC-ráðstefnumiðstöðinni. Aðalverslunarhverfið, þar sem Bullring-verslunarmiðstöðin er staðsett, er stutt frá hótelinu og 10 mínútna gangur er að Birmingham New Street lestarstöðinni.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 20 km
- Miðbær: Í miðbænum
- Veitingastaðir: Allt um kring
Aðstaða
- Bar
- Gestamóttaka
- Herbergi
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Loftkæling
- Öryggishólf: Í móttöku
Fæði
- Án fæðis