fbpx Indigo Dubai Down Town/ Ramada Corniche Abu Dhabi | Vita

Indigo Dubai Down Town/ Ramada Corniche Abu Dhabi
4 stars

4 nætur í Dubai á hótel Indigo Dubai Down Town , sem er stórglæsilegt fjögurra stjörnu hótel.

Hótelið er afar vel staðsett í hjarta miðbæjar Dubai og er kjörinn staður til að uppgötva borgina frá.  Héðan geta gestir nýtt sér allt það líflega sem borgin hefur upp á að bjóða. Með þægilegri staðsetningu sinni býður hótelið upp á greiðan aðgang að öllu því mest spennandi í Dubai. Hótelið er með 269 stórglæsileg herbergi og er hönnunin einstök og lífleg með útsýni sem vekur upp öfund.

Herbergin eru öll með sjónvarpi, síma, öryggishólfi, hárþurrku og eru baðherbergi ýmist með baðkari eða sturtu.  Góð aðstaða er á hótelinu en þarna er  útisundlaug sem er  25 metra, einnig er líkamsræktarstöð, heilsulind, veitingarstaður, kaffihús og tveir barir ásamt sundlaugarbar. Útsýnið frá hótelinu er yfir allan sjóndeildarhring borgarinnar og því ógleymanlegt fyrir hótelgesti að horfa yfir borgina á hvaða tíma sólarhringsins sem er.  

Heimasíða hótelsins

5 nætur í Abu Dhabi á hótel Ramada Corniche, fjögurra stjörnu lúxus hótel sem býður gestum sínum upp á úrval af einstakri þjónustu til að hjálpa þeim að njóta fjölbreyttra gersema  Abu Dhabi.

Hótelið sameinar sjarma og gestrisni með öllum nútímalegum þægindum innan seilingar. Hótelið er staðsett í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá fallegu Corniche-ströndinni og 10 mínútna akstursfjarlægð frá Saadiyat-eyju, sem þýðir á íslensku,,Hamingju eyja".

Á hótelinu eru tveir veitingastaðir, einn indverskur og annar þar sem matur er reiddur fram af hlaðborði. Þarna er einnig dásamlegt kaffihús sem sérhæfir sig í kökum og öðrum sætindum. Upp á efstu hæð hótelsins er útisundlaug ásamt lítilli sólbaðsaðstöðu. Líkamsræktaraðstaða og heilsulind stendur hótelgestum einnig til boða. Á hótelinu eru 235 herbergi með fallegu útsýni yfir Persaflóann.  Öll eru þau vel búin með sjónvarpi, síma, öryggishólfi, te- eða kaffivél, minibar og hárþurrku svo eitthvað sé nefnt. Glæsileg aðstaða á hótelinu hjálpar svo sannarlega til að gera dvölina í Abu Dhabi eins skemmtilega og mögulegt er. 

Heimasíða hótelsins

Ferðamannaskattur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Skatturinn er 5 - 6 dirhams á mann á nótt. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 1,5 klst. akstur til Dubai
  • Flugvöllur: 2,5 klst. akstur frá Abu Dhabi

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun