Miði á leik Ísland-Úkraína 26.mars

Icelandair tekur þátt í gleðinni og setur upp ferð á landsleik Íslands og Úkraínu 26. mars næstkomandi.
Áætlað er að leggja af stað klukkan 08:00 að morgni þann 26. mars og heim um 00:45 á staðartíma, 27. mars.
Ferð er háð lágmarks þátttöku sem verður að nást fyrir miðnætti, laugardaginn 23. mars. Sjá nánar á vef Icelandair.
Við hvetjum alla til að mæta á þennan úrslitaleik um sæti á EM og styðja okkar lið til sigurs!
Þetta verður sannkölluð stemningssamkoma.