fbpx Jen Orchardgateway, Singapúr | Vita

Jen Orchardgateway, Singapúr
4 stars

Vefsíða hótels

Einstakt og glæsilegt nýbyggt hótel á frábærum stað við Orchard-stræti í hjarta Singapúr. Verslunarmiðstöð og veitingastaðir eru á neðstu hæðum hótelsins og iðandi mannlíf á alla kanta. 
Í hótelinu eru 499 björt og rúmgóð herbergi sem rúma tvo til þrjá einstaklinga, frá 27 og upp í 66 fermetrar að stærð. Innréttingar eru stílhreinar, nútímalegar og þægilegar, í brúnum og ljósum litum. Teppi eru á gólfum. Öll herbergi eru búin loftkælingu og upphitun, síma, 40 tommu nettengdu flatskjársjónvarpi, rafrænu öryggishólfi, gufustraujárni og strauborði auk aðstöðu til að laga te og kaffi. Á baðherbergjum er hárþurrka, ókeypis baðvörur og sturta. Ókeypis þráðlaus háhraðanettenging er á öllum herbergjum og sameiginlegum rýmum. 

Veitingastaðurinn Macan býður allan daginn upp á girnilega rétti bæði af hlaðborði og matseðli en ef þú ert á hlaupum gæti snarlstaðurinn On The Go komið þér til bjargar. Á Bay Watch er útsýnið álíka og úr sundlauginni, endalaust og ógleymanlegt, og það er maturinn og kokteilarnir líka. 
Það er ekki fyrir lofthrædda en það er hægt að lofa því að það gleymist engum sem fær sér sundsprett, eða bara slakar á og lætur sig fljóta, í þaksundlauginni þar sem himinn og haf renna saman í eitt. Einnig er hægt að slaka á eftir annasaman dag í nuddpottinum. 
Líkamsræktaraðstaða er til fyrirmyndar, opin allan sólarhringinn, og hægt er að panta nudd við sundlaugina eða á herbergið með tveggja tíma fyrirvara.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er meðal annars boðið upp á þvottaþjónustu, þurrhreinsun, gjaldeyrisskipti og bílaleigu.

Jen Orchardgateway gæti ekki verið betur staðsett í nýbyggingu í hjarta Singapore. Á neðri hæðum byggingarinnar er fjöldi verslana og veitingastaða og ION Orchard verslunarmiðstöðin er í nokkurra mínútna göngufjarlægð. Þá er innangengt af hótelinu niður í Somerset jarðlestastöðina sem flytur þig hvert svo sem ferðinni er heitið. 

 

Fjarlægðir

  • Miðbær: Í miðbænum
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Hárþurrka
  • Kaffivél
  • Loftkæling
  • Sjónvarp
  • Öryggishólf

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun