fbpx Jewels of the Seas | Vita

Jewels of the Seas
4 stars

Glæsilegt farþegaskip sem tekur alls 2.500 gesti auk áhafnar. Um borð er klifurveggur, körfuboltavöllur, spilavíti, heilsulind, barir, veitingastaðir, leikhús, setustofur og sundlaugar. 

Klefar eru ýmist með tvíbreiðu rúmi eða tveimur rúmum, setkrók með sófa og skrifborði, sjónvarpi (flatskjá,)  ísskáp eða smábar, hárþurrku, snyrtiborði og öryggishólfi.
Baðherbergi með sturtu og snyrtivörum. Herbergisþjónusta allan sólarhringinn.
Sundlaugar, sólbekkir, nuddpottar, barir og veitingastaðir eru á sólarþilfarinu. Leikir og fjör á daginn og gjarnan lifandi tónlist.
Heilsulindin býður ýmsar dekur- og heilsubætandi meðferðir gegn gjaldi. 

Aðal veitingasalurinn er á tveimur hæðum með svölum og glæsilegur í allar staði. Þar dekra prúðbúnir þjónar, vínsérfræðingar og vikapiltar við gesti sína. Aðrir veitingastaðir eru til dæmis Chops Grill, gott steik hús og sérrétta veitingastaðurinn Giovanni‘s table sem er með ítölsku þema. Á þessum veitingastöðum þarf að panta borð og greiða aukagjald.
Windjammer er sjálfsafgreiðslu veitingastaður og afar vinsæll fyrir morgun- og hádegisverð.  Þar má fá bæði salöt, létta rétti, kjöt, fisk og pasta og að sjálfsögðu er nóg af gómsætum eftirréttum.
Barir eru um allt skipið, hver með sitt þema og er kampavínsbarinn einkar vinsæll. Hægt er að fá eitthvað að borða og drekka nánast allan sólarhringinn. Allan daginn eru veitingastaðirnir opnir. Hægt er að fá morgunverð, hádegisverð, kaffihlaðborð síðdegis og kvöldverð. Ef einhver er svangur á nóttunni, er herbergisþjónusta opin allan sólarhringinn.

Gestir hafa aðgang að leikhúsi og geta njótið þess að horfa á glæsilegar skrautsýningar, töfrabrögð eða tónleika og á börunum eru einnig uppákomur.
Eitthvað fyrir alla að skoða og skemmta sér.

Fjarlægðir

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka

Fæði

  • Fullt fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun