fbpx JS Palma Stay, Playa de Palma | Vita

JS Palma Stay, Playa de Palma
4 stars

Vefsíða hótels

Nýuppgert hótel sem er einungis ætlað 16 ára og eldri. Tilvalið fyrir fólk sem vill blanda saman strandlífi á Playa de Palma og Can Pastilla og búðarápi í Palma.

Í hótelinu, sem er í tveimur byggingum, báðum með lyftu, eru 242 tveggja manna herbergi, nýlega uppgerð. Herbergin eru þó ekki stór. Þau eru öll í ljósum litum, björt og nútímalega og smekklega innréttuð. Þau eru loftkæld og búin sjónvarpi með gervihnattarásum, ókeypis þráðlausum netaðgangi og hárþurrka er á baði. Smábar er í herbergjunum og er fyllt á hann daglega. Svalir eða verönd er á öllum herbergjum. Sum herbergi eru með sjávarsýn, önnur með útsýni yfir sundlaugagarð, næsta hótel eða bílastæði. 

Veitingastaður sem býður upp á hlaðborð er í JS Palma Stay-hótelinu og þar má sjá kokkana að störfum. Snarlbar með útsýni yfir sundlaugarsvæðið er tilvalinn staður til þess að njóta umhverfisins. 

Við hótelið eru gróðursælir garðar, tvær sundlaugar, sólbekkir og sólhlífar, heitir pottar og skemmtilegur bar í aðalsundlauginni. Garðurinn er ekki stór en góður. 

Í hótelinu er heilsulind með sána, tyrknesku baði, nuddherbergjum, nuddlaug og slökunarsvæðum. Þá er líkamsræktaraðstaða á staðnum.

JS Palma Stay er í næst höfuðborg Palma af þeim hótelum sem VITA býður upp á. Stutt er í almenningsfarartæki og leigubíla frá hótelinu. Örstutt er á ströndina í Can Pastilla og 15 mínútna gangur á ströndina í Playa de Palma. Fyrir þá sem vilja er tilvalið að ganga að dómkirkjunni í Palma en það tekur um þrjú korter. Á leiðinni eru veitingahús, kaffihús og barir þar sem hægt er að setjast niður og fá sér hressingu.

Nóg er af annars konar afþreyingu. Hraðbátar, seglbátar, seglbretti, sjóþotur, köfun og smábílaakstur er allt innan seilingar og stutt að fara í dýragarð, sædýrasafn eða vatnsskemmtigarð.

Fyrir sportistana má einnig benda á útreiðar, hjólreiðar og tennis að ógleymdu golfinu.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 3,5 km
  • Miðbær: 10 km til Palma
  • Strönd: 80 m
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging: Þráðlaus nettenging án endurgjalds er á sameiginlegum svæðum og í herbergjum

Vistarverur

  • Hárþurrka
  • Verönd/svalir
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Sjónvarp
  • Öryggishólf

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun