fbpx KVAN - La Siesta | Vita

KVAN - La Siesta
4 stars

Vefsíða hótels

Endurmenntunarferð til Tenerife 24.-28.maí

Velkomin(n) á skráningarsíðu VITA og KVAN þar sem að þú skráir þig íendurmenntunarferð til Tenerife.
Í ferðinni náum við að sameina endurmenntun, eflingu liðsheildar og njótum samvistar hvors annars á Tenerife.

Innifalið í ferðinni 
Flug til og frá Tenerife.
Akstur til og frá flugvelli á Tenerife
Endurmenntun og námskeið hjá KVAN 
Fararstjórn
Hótelgisting á La Siesta með hálfu fæði.

Verð 
154.900 krónur fyrir einstakling miðað við að gist sé í tveggja manna herbergi. 
176.900 krónur fyrir einstakling í einstaklingsherbergi

Staðfestingargjald
40.000 krónur sem er óendurkræft.

Skráning í herbergi 
Vinsamlega skráðu bara þig sem einstakling og svo raðar ferðanefndin ykkar ykkur saman í herbergi áður en farið er í ferð.
Nánari ferðalýsing og námskeiðslýsing verður svo send á þig áður en farið verður í ferðina.

Hlökkum til að fara í gegnum þetta ferðalag með ykkur.
KVAN

 

La Siesta

La Siesta er gott hótel, vel staðsett á Playa de las Americas ströndinni. Hótelið er þriggja hæða bygging, U-laga, með fallegum garði, sundlaug og barnalaug, heilsulind og skemmtidagskrá.
Stutt er til strandarinnar og göngugatna þar sem verslanir, barir, veitingahús og kaffihús eru á hverju strái og örstutt yfir að hótelunum Villa Cortes, Vulcano, Bitácora og Parque Santiago.

Hótelið býður upp á skemmtidagskrá á hverjum degi fyrir alla aldurshópa. Leikir í sundlauginni á daginn og lifandi tónlist, skemmtiatriði og diskó á kvöldin. Á staðnum er hárgreiðslustofa, heilsurækt, tækjasalur og heilsulind. Heilsuræktin er innifalin ef þú ert gestur á La Siesta, utanaðkomandi geta þó borgað inn til að fá aðgang. Heilsulindin er innifalin fyrir þá sem hafa bókað á  „Club Alexandre”  herbergjunum. Þar er upphituð inni sundlaug. 

Hægt er að velja um að gista í hefðbundnum herbergjum eða svokölluðum „Club Alexandre”  herbergjum. Venjulegu herbergin eru misstór, en öll rúmgóð. Þau eru loftkæld með hárþurrku, sjónvarpi, síma öryggishólfi og litlum setkrók. Einnig er hægt að fá smábar gegn greiðslu en ekki er hægt að fá tóman smábar/ísskáp.
Club Alexandre herbergin eru jafn stór og hefðbundin herbergi, en þau eru öll með garðsýni og betur útbúnum baðherbergjum. Kaffivélar fylgja þessum herbergjum en kaffihylki aðeins við komu á hótelið. Eftir það þarf að kaupa kaffihylkin en þau eru meðal annars seld í móttökunni. Gestir fá einnig baðsloppa og inniskó. 
Nettenging er gegn gjaldi en getur verið hæg og er misjöfn milli herbergja. Netið hefur verið í lagi í sameiginlegu rými hótelsins.
Hægt er að panta herbergi með hjólastólaaðgengi. Herbergin eru flest með baðkar. 

„Magic Park“ eða Töfragarðurinn, er  skemmtigarður sem staðsettur er á hótelinu og er hugsaður fyrir börn á öllum aldri. Garðurinn skiptist í tvö svæði. Annars vegar svæði fyrir krakka á aldrinum 2-9 ára. Á því svæði eru rennibrautir, ýmis leiktæki, leiksvið og aðstaða þar sem krakkar geta litað og málað. Hins vegar er svæði fyrir eldri börn og fullorðna með leiktækjum, fótboltaspilum, keilu, borðtennis, biljarð-borðum o.fl. Greiða þarf fyrir aðgang að flestum tækjunum.
Einnig er aðgengi að ,,Paddle Court" sem er svipaður og tennisvöllur.

„El Drago“ er veitingasalur hótelsins, bjartur og huggulegur. Þar ganga gestir að morgunverði og kvöldverði af hlaðborði.  Hægt er að skipta út kvöldverði fyrir hádegisverð.  Snakkbar er á sundlaugarsvæðinu og á hótelinu er einnig þægilegur píanóbar þar sem gjarnan er skemmtidagskrá á kvöldin.

Vikulega eru þemakvöld á hótelinu og eru þau ýmist inni eða úti. Þar má nefna Kanaríeyjakvöld, ítölsk kvöld og grillveislu í garðinum.

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 15 min akstur

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging: Gegn gjaldi, en athugið að hún getur verið misjöfn milli herbergja.
  • Handklæði fyrir hótelgarð: Handklæði fyrir sundlaugargarð kosta 0,50 cent pr dag. Hægt er að leiga þau í móttöku.

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi
  • Kaffivél: Fylgir Club Alexandre herbergjunum

Fæði

  • Allt innifalið
  • Hálft fæði
  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun