fbpx Labranda Isla Bonita, Costa Adeje | Vita

Labranda Isla Bonita, Costa Adeje
3,5 stars

Vefsíða hótels

Vel staðsett hótel í Costa Adeje með öllu inniföldu.

Einföld en rúmgóð herbergi með loftkælingu, svölum, síma, baðherbergi, hárblásara og þráðlausri nettengingu.  Öryggishólf gegn gjaldi.
Hótelið er vel staðsett, í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá Fañabe ströndinni.  Stutt í verslanir og afþreyingu, svo sem vatnsrennibrautagarðinn Siam Park. 

Góður sundlaugagarður með tveimur sundlaugum og tveimur barnalaugum.  Á hótelinu er einnig að finna tennisvöll, íþróttasal og líkamsræktaraðstöðu.  Leiksvæði og barnaklúbbur fyrir börn á aldrinum 4 til 12 ára.  

Á veitingastaðnum er borinn fram morgun-, kvöld- og hádegisverður á hlaðborði.  Innlendir drykkir eru innifaldir.

Einfalt en snyrtilegt og vel staðsett hótel fyrir alla fjölskylduna.

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 20 km
  • Strönd: 5 min ganga á Fañabe ströndina
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi

Fæði

  • Allt innifalið

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun