fbpx Lava Beach, Puerto del Carmen | Vita

Lava Beach, Puerto del Carmen
5 stars

Vefsíða hótels

Flott, stílhreint hótel á friðsælum stað með beinu aðgengi að Matagorda-ströndinni í Puerto del Carmen. Fullkomin slökun og hvíld.

Í hótelinu eru 154 herbergi og svítur, 28 til 42 fermetrar að stærð, af sjö mismunandi gerðum. Herbergin eru tveggja manna en svítur rúma þrjá til til fjóra fullorðna. Innréttingar eru stílhreinar og hlýlegar, í ljósum við og hvítum og ljósbláum litum. Öll nútímaþægindi eru að sjálfsögðu til staðar, loftkæling, sími, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, Nespresso-kaffivél og hraðsuðuketill, smábar sem fyllt er á gegn gjaldi og öryggishólf. Á baðherbergjum er salerni í sérrými, sturta, hárþurrka og baðvörur. Premium herbergjum fylgja sloppar og inniskór. Svalir eða verönd búin húsgögnum er við allar vistarverur. Í Deluxe herbergjunum á efstu hæðinni er nuddbaðker og stórar svalir með útsýni yfir hafið. Alls staðar er þráðlaus nettenging.

Océana er hlaðborðsveitingastaður sem býður upp á morgun- og kvöldverð. Hægt er að fylgjast með matreiðslumönnunum að störfum og njóta matarins á útiveröndinni. Aroma býður ljúffenga rétti úr fersku hráefni af matseðli þrjú kvöld vikunnar og þar þarf að panta borð. Á sundlaugarbarnum er hægt að fá létta rétti og ljúffenga drykki. Þakbarinn á fimmtu hæðinni býður upp á magnað útsýni og á píanóbarnum er lifandi tónlist og skemmtidagskrá.

Tvær sundlaugar eru í hótelgarðinum, önnur með vatnsnuddi. Lítil busllaug er fyrir börn. Sólbaðsaðstaðan er til fyrirmyndar, í garðinum eru sólbekkir, sólhlífar og balíbeddar. Einnig er beint aðgengi að sandströndinni þar sem hægt er að leigja sólbekki.

Í heilsulindinni er gufubað, tyrkneskt bað, nuddpottur, sturtur og slökunarsvæði á útiverönd. Þar er boðið upp á slökunar- og snyrtimeðferðir og nudd. Líkamsræktaraðstaðan er með nýjustu tækjum og boðið er upp á tíma í jóga og Pilates.

Móttakan er opin allan sólarhringinn og þar er farangursgeymsla, reiðhjóla- og bílaleiga.

Fallegt hótel á friðsælum stað við sandströnd. Veitingastaðir og litlar verslanir eru í nágrenni hótelsins og stutt er í afþreyingu eins og vatnasport og aðeins 3 kílómetrar í flottan golfvöll. Þá er tilvalið að fá sér göngu- eða hjólatúr eftir göngugötunni meðfram strandlengjunni.

Fjarlægðir

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun