fbpx Lemon & Soul Hotel, Las Palmas | Vita

Lemon and Soul Hotel, Las Palmas
3 stars

Vefsíða hótels

Vel staðsett þriggja stjörnu hótel í Las Palmas, aðeins steinsnar frá Las Canteras ströndinni og aðeins í 800 metra fjarlægð frá miðbænum. Allt um kring eru veitingastaðir og verslanir. 

Á hótelinu er móttaka opin allan sólarhringinn og upp á þakinu er sólbaðsaðstaða og jacuzzi.  Öll herbergin sem samtals eru 71 voru tekin í gegn árið 2019, öll eru þau búin þægindum eins og sjónvarpi,síma, loftkælingu, þráðlausu interneti og fullbúnu baðherbergi þar sem er sturta og hárþurrka. 

Í boði eru Standard herbergi sem eru með útsýni yfir götuna og Standard Economy herbergi, í báðum herbergjatýpum geta verið allt að einn til tveir einstaklingar. 

Góður kostur fyrir þá sem vilja dvelja í höfuðborginni og njóta alls þess sem hún hefur uppá að bjóða

Ath. Fararstjórar VITA eru ekki staðsettir í Las Palmas en hægt er að nálgast þá í þjónustusíma. 

Aðstaða

  • Herbergi
  • Lyfta
  • Sturta
  • Sjónvarp
  • Þrif
  • Lín og handklæðaskipti
  • Þráðlaust net
  • Hárþurrka

Fæði

  • Án fæðis, Morgunmatur

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun