fbpx Leonardo Royal Berlin | Vita

Leonardo Royal Berlin
4 stars

Vefsíða hótels

Hlýlegt og nútímalegt hótel á besta stað í Mitte-hverfinu í miðborginni, rétt við hinn fallega Friedrichshain-garð og stutt frá Alexa-verslunarmiðstöðinni. 15 mínútna göngutúr er að Alexanderplatz. Verslanir og veitingastaðir allt um kring og almenningssamgöngur stoppa beint fyrir utan hótelið.

Í hótelinu eru 346 herbergi og svítur sem rúma allt að þrjá en einnig er hægt að fá samliggjandi fjölskylduherbergi. Innréttingar eru fallegar, stílhreinar og hlýlegar, viður millibrúnn og bjartir litir í áklæði á einstaka veggjum. Teppi er á gólfum. Alls staðar er loftkæling og upphitun, sími, útvarp, 32 tommu flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, öryggishólf sem rúmar fartölvu, smábar og aðstaða til að laga kaffi og te hið minnsta. Á baðherbergjum er almennt sturta, hárþurrka og Sea of spa baðvörur. Ókeypis þráðlaus nettenging er á öllu hótelinu. 

Hægt er að fá girnilegan morgunverð af heitu og köldu hlaðborði alla morgna á  veitingastaðnum Vitruv. Á kvöldin er áherslan á matargerð Miðjarðarhafsins auk asískra rétta, allt af matseðli, og að sjálfsögðu er vín í boði sem smellpassar með hverjum rétti. Á Leo 90 setustofubarnum fást ljúffengir drykkir og léttir réttir. Tveir fyrir einn gildir á barnum alla daga milli kl. 17 og 19. 

Þeir sem vilja nota tækifærið og slaka örlítið á geta gert það í heilsulindinni á sjöundu hæðinni þar sem er sána, þurrgufa og líkamsræktaraðstaða auk hvíldarhreiðurs. 

Móttakan er að sjálfsögðu opin allan sólarhringinn og þar er farangursgeymsla og starfsfólk aðstoðar við miðakaup. 

Leonardo Royal er á mjög góðum stað, stutt frá Sjónvarpsturninum og öðrum þekktum kennileitum. Þess má geta að Friedrichshain-garðurinn er rétt við hótelið og þar er tilvalið að hlaða batteríin með því að fá sér hlaupasprett í morgunsárið eða bara njóta guðsgrænnar náttúrunnar í hjarta borgarinnar.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 12 km
  • Miðbær: Á besta stað í Mitte-hverfinu í miðborginni
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun