Liberty of the Seas
Vefsíða hótels

Liberty of the Seas Er eitt af stóru skipunum í flotanum. Liberty er 260,000 tonn og um 339 metra langt. Skipið var smíðað í Turku í Finnlandi 2007 og síðan algerlega endurnýjað 2011 og 2016 fór það í þurrkví þar sem bætt var í og settar vatnsrennibrautar og fleira lagfært. Á Liberty of the Seas er göngugata „Royal Promenade“ þar sem iðar allt af lífi, kaffihús, verslanir og veitingastaðir. Í leikhúsinu er boðið upp á Bradway showið „ Saturday Night fever“ ásamt fleiri sýningum. Skautasvellið er á sínum stað þar sem gestir geta reynt sig á skautum eða farið á ótrúlegt skautashow. Á hverju kvöldi er boðið upp á þriggja rétta máltíð í aðal veitingastaðnum sem er upp á þrjár hæðir, auk þess sem eru nokkur sér veitingahús auk bara og skemmtistaða. Á sundlaugardekkinu eru sundlaugar, heitir pottar og ævintýralegt barnasundsvæði, auk þess sem það er körfuboltavöllur, minigolf, klifurveggur og brimbrettalaug ( flow rider) Liberty of the Seas rúmar allt að 4960 farþega og er með 1300 manna áhöfn.
Klefar eru ýmist með tvíbreiðu rúmi eða tveimur rúmum, setkrók með sófa og skrifborði, sjónvarpi með flatskjá, ísskáp eða smábar - eftir vali, hárþurrku, snyrtiborði og öryggishólfi. Baðherbergi með sturtu og snyrtivörum. Herbergisþjónusta allan sólarhringinn.
Fjarlægðir
Aðstaða
- Sundlaug
- Skemmtidagskrá
- Veitingastaður
- Aðgengi fyrir fatlaða
- Bar
- Barnadagskrá
- Barnaleiksvæði
- Barnasundlaug
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Herbergi
- Handklæði fyrir hótelgarð
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Sundlaug: Á skipinu
- Veitingastaður: Á skipinu
- Nettenging: Gegn Gjaldi
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Ísskápur
- Verönd/svalir
- Hárþurrka
- Herbergi
Fæði
- Fullt fæði