fbpx Lisbon Marriott

Lisbon Marriott
4 stars

Vefsíða hótels

Mjög gott nýlega uppgert hótel. 3km frá breiðgötunni Avenida da Liberdade. Verslunargötur og veitingastaðir rétt við hótelið og stutt er í dýragarðinn. 

Í hótelinu eru 577 fallega innréttaðar vistarverur sem skiptast í tveggja manna herbergi og svítur, hægt er að bæta við rúmi. Innréttingar eru klassískar og stílhreinar, í hlýjum litum. Teppi er á gólfum. Loftkæling og upphitun er í öllum herbergjum, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, öryggishólf, straujárn og strauborð og aðstaða til að laga kaffi og te. Vatn á flöskum fæst gegn gjaldi. Á baðherbergjum er baðker, hárþurrka og baðvörur. Svítum fylgja baðsloppar og inniskór.  Gluggar ná frá gólfi upp í loft og litlar svalir með útsýni yfir hótelgarðinn eða borgina eru við öll herbergin. Þráðlaust internet er gestum að kostnaðarlausu í sameiginlegum rýmum en gegn gjaldi á herbergjum. 

Morgunverðarhlaðborð með heitum og köldum réttum er í veitingasal. Á veitingastaðnum Citrus eru í boði fjölbreyttir portúgalskir og alþjóðlegir rétti af matseðli. Við veitingastaðinn er bar með úrvali portúgalskra víntegunda. Tapas & Tiles er veitingastaður og bar með verönd sem snýr út að grónum hótelgarðinum. Þar eru í boði léttir réttir og kokteilar af ýmsum gerðum. Auk þess eru matar- og drykkjarsjálfsalar í hótelinu.

Þó að Marriott sé í miðborg Lissabon er hótelgarðurinn fallegur og gróinn og þar er sundlaug með sólbekkjum í kring og handklæðum. Líkamsræktaraðstaðan er hin ágætasta og er opin allan sólarhringinn. 
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn, þar er hraðbanki, töskugeymsla og þvotta- og þurrhreinsiþjónusta, auk gjafaverslunar. Starfsfólk aðstoðar við miðakaup og bílaleigu.
Lisbon Marriott er mjög gott hótel þar sem verslanir og veitingastaðir eru allt um kring. Dýragarðurinn er í göngufæri og með almenningssamgöngum er auðvelt að komast að öllum helstu söfnum og kennileitum. 

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 8 km
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring
  • Miðbær: 3 km frá Avenida da Liberdade.

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging: Gegn gjaldi á herbergjum, frítt í sameiginlegum rýmum.

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun