Los Fariones, Puerto del Carmen
Vefsíða hótels

Hotel Fariones er glæsilegt fimm stjörnu lúxushótel á frábærum stað á ströndinni í Puerto del Carmen, Lanzarote. Hér er allt til alls fyrir frábært frí í sólinni.
Á hótelinu eru 213 herbergi sem skiptast í herbergi fyrir tvo til þrjá og svítur. Herbergin eru mjög rúmgóð og hönnunin svolítið djörf og skemmtileg, allavega kemur hún á óvart. Á öllum herbergjum er loftkæling, frítt internet, sjónvarp með gervihnattarásum, öryggishólf, ketill, kaffivél og míníbar. Baðherbergin eru með góðri sturtu, hárþurrku, stækkunarspegli og helstu snyrtivörum. Góðar svalir eru út frá herbergjunum og þar er yndislegt að sitja og njóta sólar og útsýnis.
Á hótelinu er fjölbreytt úrval veitingastaða. Morgunverður er borinn fram á fersku og girnilegu hlaðborði og hægt er að njóta hans innandyra eða úti í hótelgarðinum. Kvöldverðar er einnig hægt að njóta af hlaðborði með miklu úrvali og góðum gæðum. Hádegisverðarstaður býður upp á léttar máltíðir og tapasrétti undir berum himni og stórbrotnu útsýni út á Atlantshafið. Asískur veitingastaður á hótelinu en þar eru gerðar tilraunir til að útvíkka hefðbundna matargerð. Síðast en ekki síst er hægt að panta mat til að njóta inni á herberginu. Góðir barir eru á hótelinu, einn þeirra er á þaki hótelsins en þaðan er dásamlegt útsýni út á haf og jafnvel yfir til Fuerteventura. Annar bar er í anddyri hótelsins. Báðir bjóða upp á gott úrval af kokteilum og lifandi tónlistarflutning á kvöldin. Í hótelgarðinum er bar sem býður upp á drykki og frískandi ávaxtasafa við sundlaugina og að lokum er klúbbur á hótelinu.
Hótelið er umvafið pálmatrjám og hótelgarðurinn einkennist með fallegum, suðrænum gróðri. Þar er falleg sundlaug, gott svæði til að liggja í sólbaði og tveir nuddpottar. Þar sem hótelið er staðsett á strandlengjunni sjálfri er svo hægt er að ganga beint út á litla sandströnd og dýfa tánum í kristalstært hafið. Önnur sundlaug er staðsett á þaki hótelsins en þar er jafnframt góð sólbaðsverönd.
Fullbúið líkamsræktarherbergi er á hótelinu og þar fyrir utan eru fjölbreyttir hóptímar í boði, hægt að fá sér einkaþjálfara eða spila tennis. Gestir geta einnig spilað golf á fallegum 18 holu velli sem er aðeins í 5 mínútna fjarlægð frá hótelinu.
Í heildina er Hotel Fariones frábær kostur fyrir alla sem vilja smá meiri lúxus í fríinu sínu.
Fjarlægðir
- Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Bar
- Gestamóttaka
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Loftkæling
- Verönd/svalir
- Hárþurrka
Fæði
- Hálft fæði
- Morgunverður