fbpx Lumen hotel | Vita

Lumen hotel
4 stars

Vefsíða hótels

Lumen hotel & the Lisbon Light Show er fjögurra stjörnu hótel staðsett á góðum stað í borginni. Eins og nafnið kemur til kynna þá býður hótelið uppá stórkostlega ljósasýningu á hverjum degi í garði hótelsins þar sem hótelgestir geta horft á samspil birtu, ljósa og litadýrðar sem skreytir umhverfið.

Á hótelinu er mjög góð aðstaða en þarna er móttaka, veitingastaður, bar og líkamsræktaraðstaða. Upp á þaki hótelsins er verönd en þangað er hægt að fara til þess að njóta útsýnisins, kæla sig í sundlauginni eða njóta sólargeislanna á sólbekkjum eða við útibarinn. 

Herbergin eru fallega búin og hafa að geyma öll þau nútímaþægindi sem við þekkjum, eins og sjónvarp, síma, öryggishólf, þráðlaust internet, minibar, te - og kaffivél. Baðherbergi eru með hárþurrku og helstu snyrtivörum. 

 

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 6,1 km.
  • Miðbær: Rétt hjá
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging
  • Aðgengi fyrir fatlaða: Hægt að sérpanta herbergi með aðstöðu fyrir fatlaða

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun