fbpx Mabrouk Riad & Spa | Vita

Mabrouk Riad & Spa
4 stars

Vefsíða hótels

Einstakt hótel í fallegum marokkóskum og andalúsískum stíl. Hótelið er staðsett í hjarta Marrekech, aðeins í um mínútufjarlægð frá Djemaa El Fna torginu og stutt frá öllu því helsta í borginni. Heilsulind, bragðgóður matur, áhugaverður arkitektúr og stutt í alla helstu þjónustu.

Á hótelinu eru sjö svítur, ólíkar að stærð og gerð ásamt 12 herbergjum sem öll eru hlýleg, fallega skreytt og hugað er að öllum smáatriðunum sem skipta máli þegar hótel er valið. Herbergin eru ólík en skemmtileg og gefa góða innsýn í stílinn frá svæðinu.  Húsgögn eru smekklega valin. Á öllum herbergjum er loftkæling, internet, míníbar, setustofa og sjónvarp með gervihnattarásum. Við öll herbergi er jafnframt verönd með útsýni yfir borgina eða út í garðinn. Baðherbergin eru með litríkum flísum en þar er sturta, salerni, stækkunarspegill og helstu snyrtivörur.

Á hótelinu er boðið upp á morgunverð á hverjum morgni. Einnig geta gestir pantað hádegisverð og kvöldverð á þessum fallega marokkóska veitingastað. Þar gefst gott tækifæri til að smakka rétti frá svæðinu eða jafnvel panta sér eitthvað alþjóðlegt. Falleg verönd er á þaki hótelsins en þaðan er útsýni yfir alla borgina. Þar er yndislegt að slaka á með drykk í hönd og njóta fegurðarinnar.

Á hótelinu er lítil innisundlaug og þaksundlaug en einnig er þar líkamsræktarstöð og heilsulind þar sem hægt er að panta sér meðferðir á borð við tyrkneskt bað, nudd og gufubað. Hér geta því allir slakað á um leið og þeir skoða þessa áhugaverðu borg. Starfsfólkið á hótelinu er boðið og búið til að aðstoða við að skipuleggja ferðina, hvort sem það er hjálp við að bóka dagsferðir eða að útskýra hvernig eigi að komast á milli staða. Ekki hika við að leita til þeirra með hvers konar vandamál.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 6 km
  • Veitingastaðir: Á hóteli og í næsta nágrenni
  • Miðbær: mínútufjarlægð frá Djemaa El Fna torginu

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging
  • Skemmtidagskrá: Kvöldskemmtanir

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Minibar

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun