fbpx Marjan Island Resort & Spa, Ras Al Khaimah | Vita

Marjan Island Resort & Spa, Ras Al Khaimah
5 stars

Vefsíða hótels

Upplifðu glæsileika Arabíu í ógleymanlegu fríi á fimm stjörnu Marjan Island Resort & Spa í Ras Al Khaimah, þar sem minningar um sól, sjó og hvítan sand bíða þín.

Hótelið er staðsett á Al Marjan eyju, sem er stórkostlegur og manngerður áfangastaður. Hann samanstendur af fjórum kóral-laga eyjum sem opnast út til glitrandi vatns við Persaflóa. Þetta er áfengislaus dvalarstaður sem er innblásinn af aldagamalli hefð arabískrar gestrisni og býður ferðamönnum að njóta þess besta í fjölskylduskemmtun, vellíðan og sólríkum ævintýrum.

Aðstaðan er hin stórglæsilegasta, en þarna eru 7 veitingastaðir og kaffihús, hægt er að láta dekra við sig á lúxus heilsulind hótelsins og á snyrtistofunni, þar sem hægt er að panta í hinar ýmsu snyrtimeðferðir. Þarna er meira en nóg fyrir alla, konur og kalla á hvaða aldri sem er. Hvort sem þú vilt drekka í þig sólina við einkaströndina, sundlaugarnar þrjár eða skella þér í vatnsíþróttir í sjónum. Ekki má heldur gleyma börnunum en þarna er sannkölluð barnaparadís og bíður þeirra undraheimur í krakkaklúbbnum. Marjan Island Resort & Spa er með 299 herbergi og er gimsteinn í kórónu Ras Al Khaimah og þú upplifir ekta arabískrar lúxus. Gerðu þig tilbúinn fyrir sannarlega eftirminnilega dvöl.

Ferðamannaskattur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Skatturinn er 6 dirhams á mann á nótt, á hótelum í Ras Al Khaimah. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 30 mín

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun