fbpx Marvie | Vita

Marvie
4 stars

Vefsíða hótels

Hótel Marvie er fjögurra stjörnu hótel í göngufjarlægð frá ströndinni og býður því hótelgestum upp á fallegt útsýni yfir bæði hafið og borgina. Uppi á þaki hótelsins er útisundlaug, sólbaðsaðstaða og veitingastaður. Gamli bærinn er í um 1,5 km. fjarlægð.

Hótelgestum stendur ýmislegt til boða á meðan dvöl stendur, en þarna er líkamsræktaraðstaða, heilsulind þar sem er m.a. innisundlaug, gufubað og snyrtistofa þar sem hægt er að fá ýmsar snyrtimeðferðir.  Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn , en á jarðhæð má einnig finna bar, setustofu og veitingastað þar sem morgunverður er framreiddur af hlaðborði. 

Öll herbergin eru búin þægindum eins og sjónvarpi, síma, loftkælingu, minibar, öryggishólfi og hárþurrku. Baðherbergi eru ýmist með baðkari eða sturtu og helstu snyrtivörum. 

 

Fjarlægðir

  • Strönd: Í göngufæri
  • Veitingastaðir: Í næsta nágrenni
  • Miðbær: 1,5 km.
  • Flugvöllur: 23 km.

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun