Maspalomas Lago, Maspalomas
Vefsíða hótels

Skemmtileg og vel búin smáhýsi sem staðsett eru í Maspalomas nálægt Faro 2 verslunarmiðstöðinni, sem margir þekkja.
Smáhýsin hafa öll verið endurnýjuð og eru rúmgóð. Val er um standard eða deluxe smáhýsi, öll eru þau með einu svefnherbergi og rúma allt að 3 fullorðna einstaklinga. Í húsunum er eldhús, stofa, svefnherbergi, baðherbergi, þráðlaust internet og hárþurrka. Verönd fylgir með hverju smáhýsi þar sem eru útihúsgögn og 2 sólbekkir eru við hvert hús. Í deluxe húsunum er loftkæling.
Smáhýsin eru byggð í tveimur röðum umhverfis sundlaugargarðinn og saman mynda þau einskonar þorp. Garðurinn er tiltölulega stór og mjög skemmtilegur, þarna er sundlaug, barnasundlaug og góð sólbaðsaðstaða.
Faro 2 verslunarmiðstöðin er í rúmlega 5 mínútna göngufjarlægð (um 500 metrar) og stutt er í golfvöllinn í Maspalomas.
Fjarlægðir
- Frá flugvelli: 33 km.
- Frá strönd: 2,7 km. Maspalomas
- Frá miðbæ: 1,3 km. Playa del Inglés (Yumbo center)
- Veitingastaðir: Í næsta nágrenni
Aðstaða
- Nettenging
- Barnasundlaug
- Sundlaug
- Gestamóttaka
- Bar
Vistarverur
- Ísskápur
- Kaffivél
- Loftkæling: Aðeins í deluxe smáhýsunum
- Öryggishólf
- Sjónvarp
- Hárþurrka
Fæði
- Án fæðis