Melia Sarriá, Barcelona
Vefsíða hótels

Glæsilegt hótel í hjarta í Barcelona þar sem er þungamiðja viðskipta, verslunar og skemmtanalífs borgarinnar.
Í hótelinu eru 333 afar rúmgóð gistiherbergi, allt frá 27 m2 herbergjum upp í 42 m2 svítur og fjölskylduherbergi og 50 m2 svítur, öll fallega og nútímalega innréttuð og með stórum og þægilegum rúmum. Baðherbergi eru rúmgóð með marmarainnréttingu, flest með nuddbaðkeri og sturtu, lúxusbaðvörum, baðslopp, inniskóm og hárþurrku. Öll herbergi og svítur eru með loftkælingu, tengingu fyrir fartölvu og ókeypis netaðgangi, 42 tommu snjallsjónvarpi, síma með talpósti á spænsku, ensku, þýsku og frönsku, öryggishólfi og vel búnum smábar (kostar aukalega). Strauborð og straujárn er hægt að panta sérstaklega (kostar ekkert aukalega).
Gott aðgengi fyir hjólastóla
ONA-veitingastaðurinn á jarðhæð hótelsinsi er nútímalega og þægilega innréttaður og býður sælkeramatreiðslu úr ferskum heimafengnum og árstíðabundnum hráefnum Miðjarðarhafssvæðisins, auk alþjóðlegra kræsinga og spænskra eðalvína.
Morgunverðarhlaðborðið fjölbreytt og glæsilegt. Boðið er upp á sérfæði, til dæmis fyrir fólk með glútenóþol.
Q-barinn er tilvalinn til þess að slaka á yfir drykk.
Aðgangur að líkamsræktaraðstöðu er ókeypis fyrir hótelgesti og hægt að sækja heilsulind og fá snyrtiþjónustu gegn gjaldi. Funda- og ráðstefnusalir búnir nýjustu tækni eru til reiðu.
Í grennd við hótelið eru glæsilegar verslunarmiðstöðvar og sérverslanir, veitingahús, barir og diskótek auk þess sem stutt er að fara til þess að skoða flest það markverðasta sem Barcelona hefur upp á að bjóða – Miro-safnið, Picasso-safnið, Güell-garð húsagerðarmeistarans Gaudis, Kirkju hinnar helgu fjölskyldu eftir sama mann auk hins víðfræga Camp Nou-leikvangs þar sem fótboltalið Barcelona leikur heimaleiki sína og er þá fátt eitt talið.
Stutt að sækja það besta sem borgin hefur að bjóða.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 15 km
- Miðbær: 2,2 km
- Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni
Aðstaða
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Líkamsrækt
- Nettenging
- Veitingastaður
- Nettenging: Þráðlaus nettenging án endurgjalds er á sameiginlegum svæðum og í herbergjum
Vistarverur
- Hárþurrka
- Loftkæling
- Minibar
- Sjónvarp
- Öryggishólf
Fæði
- Morgunverður