fbpx Melia Varadero | Vita

Melia Varadero
5 stars

Vefsíða hótels

Mjög góð hótelsamstæða á Varadero-strandlengjunni, rétt við golfvöllinn og Plaza America-verslunarmiðstöðina.

Í hótelinu eru 490 herbergi og svítur. Allar vistarverur eru fallega innréttaðar í klassískum stíl, húsgögn úr millidökkum við og flísar á gólfum. Herbergin eru rúmgóð, flest 33 fm að stærð og  nokkur 50 fm, öll eru búin sjálfsögðum nútímaþægindum eins og loftkælingu, stillanlegri upphitun, síma, flatskjársjónvarpi með gervihnattarásum, öryggishólfi, smábar sem fyllt er á daglega, straujárni og straubretti og kaffivél. Á baðherbergjum er hárþurrka og baðvörur fylgja. Þráðlaust netsamband er í öllum vistarverum gegn gjaldi. Við öll herberbergin eru svalir með húsgögnum.

Þegar kemur er að mat gætu málin vandast fyrir þá óákveðnu því að úr nægu er að velja, hér eru sex veitingastaðir, hver með sína áhersluna. Trinidad, sem er við sundlaugina sérhæfir sig í kúbverskri matargerð, Las Reses býður upp á dýrindis steikur, á Sakura er matargerðin japönsk, Los Agaves er mexíkóskur staður, Fuerteventura býður upp á alþjóðlega sælkerarétti og á Havana eru réttirnir þjóðlegir og alþjóðlegir í bland. Fram kemur við innritun á hvaða veitingastöðum maturinn er inni í „allt innifalið“ samningnum og hvar þarf að panta borð og greiða aukalega.

Barirnir eru þrír og einnig er snarlbar opinn allan sólarhringinn í móttökusalnum.

Hótelgarðurinn er gróinn og fallegur, þar er sólbaðsaðstaða til fyrirmyndar, sólbekkir og sólhlífar. Í sundlauginni miðri er skemmtilegur bar sem nálgast má hvort tveggja frá þurru landi og úr lauginni sjálfri. Einnig eru sólbekkir og bar á ströndinni.

Enginn ætti að láta sér leiðast því að líkamsræktaraðstaða er í hótelinu og á snyrtistofunni er boðið upp á andlits- og líkamsmeðferðir og þar er nuddpottur. Boðið er upp á kennslu í spænsku, dansi og kokteilgerð og starfsfólk sér um dagskrá frá morgni til kvölds með alls kyns afþreyingu og lifandi tónlist. Þá eru tennis vellir við hótelið og auðvitað er hægt að kafa í sjónum.

Móttakan er opin allan sólarhringinn og þar er hægt að skipta gjaldeyri, leigja bíl, fá þvottaþjónustu, aðstoð við að skipuleggja skoðunarferðir og fleira. Verslanir með minjagripi, gjafavöru og annan varning eru á hótelinu.

Hótel Melia Varadero er tilvalinn valkostur bæði fyrir þá sem vilja hafa nóg fyrir stafni í fríinu, golfvöllur er rétt við hótelið og enn styttra er í Plaza America-verslunarmiðstöðina, en einnig fyrir þá sem vilja bara slaka á og njóta sólar og sjávar með tærnar upp í loft.  

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 12 km
  • Strönd: Við strönd

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging: Gegn gjaldi

Vistarverur

  • Hárþurrka
  • Kaffivél
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Sjónvarp
  • Öryggishólf

Fæði

  • Allt innifalið

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun