Mespil
Vefsíða hótels
Einfalt en mjög gott þriggja stjörnu hótel, vel staðsett í borginni. Hótelið er í göngufæri við helstu staði í miðborg Dublinar og tekur aðeins um 15 mínútur að ganga að Stepens Green garðinum og að göngugötunni Grafton Street.
Á hótelinu eru 255 herbergi, standard tveggja manna herbergi, hjónaherbergi auk fjölskylduherbergja.
Öll herbergi eru nýlega endurnýjuð í hlýlegum litum og eru þægileg og notaleg. Á öllum herbergjum er sjónvarp, sími , öryggishólf, internettenging , kaffi og tesett, buxnapressa og hárþurrka.
Á hótelinu eru tveir veitingastaðir, auk þess sem úrval er af góðum og fjölbreyttum veitingastöðum og krám í næsta nágrenni hótelsins.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 16 km
- Miðbær: 1 km - 15 mín. ganga
- Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni
Aðstaða
- Veitingastaður
- Bar
- Gestamóttaka
- Líkamsrækt
- Nettenging: Þráðlaus nettenging án endurgjalds er á sameiginlegum svæðum og í herbergjum
Vistarverur
- Sjónvarp
- Kaffivél
- Hárþurrka
Fæði
- Morgunverður