fbpx Milano Hotel, Madonna | Vita

Milano Hotel, Madonna
3 stars

Vefsíða hótels

Hótel Milano er þriggja stjörnu hótel í miðbæ Madonna. Stutt er að að fara í skíðalyfturnar frá hótelinu og þar er ágæt þjónusta. Hótel sem hefur verið vinsælt meðal Íslendinga undanfarin ár vegna framúrskarandi staðsetningar.

Setustofa og veitingasalur er huggulegt og allt er hótelið hið snyrtilegasta. Á hótelinu er lítill tækjasalur, borðtennis og barnahorn. Sauna og sólarlampar gegn greiðslu. Aðgangur að interneti er á sameiginlegum svæðum.

Herbergin eru með síma, sjónvarpi, útvarpi, öryggishólfi, hárþurrku, nettengingu (nema á 3.hæð næst netið illa) gegn greiðslu og flest eru þau með svölum. Greiða þarf tryggingagjald við leigu á öryggishólfi, sem fæst til baka þegar lykli er skilað. Hótelið er frekar gamalt, en á góðu verði. Maturinn þykir góður og þjónusta er þægileg. 

Hótel Milano er með hálfu fæði.

Vinsamlegast athugið að þrátt fyrir að hótelið sé með nettengingu, getur sambandið verið slitrótt og óöruggt.
Þeim sem verða að komast á netið, t.d. vegna vinnu er ráðlagt að taka með sér G-4 tengi. Þetta á við öll hótelin í bænum.

Ferðamannaskatturinn í Madonna er ekki innifalinn í verði ferðarinnar og greiðist á hóteli við við brottför. Skatturinn var €1 á mann á nótt veturinn 2016, en gæti hækkað lítillega næsta vetur.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 150 km
  • Miðbær: Í miðbænum
  • Skíðalyfta: 200 m
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging: Þráðlaus nettenging gegn gjaldi á sameiginlegum svæðum
  • Herbergi: Tveggja manna herbergi. Ekki eru öll herbergi með svölum

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Ísskápur
  • Hárþurrka
  • Verönd/svalir: Ekki eru öll herbergi með svölum

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun