fbpx Moggaklúbburinn, Carlton

Carlton Bilbao
5 stars

Vefsíða hótels

Gullfallegt hótel í sögulegri byggingu og eitt af kennileitum Bilbao. Það stendur við Federico Moyúa-torg, í hjarta miðborgarinnar, með breiðstræti, veitingastaði og verslanir á alla kanta. Gamaldags glæsileiki með öllum nútímaþægindum.
 
Í hótelinu eru um 140 rúmgóð tveggja manna herbergi og svítur. Innréttingar eru mismunandi eftir herbergjum, ýmist klassískar og íburðarmiklar eða nútímalegar og stílhreinar, eða blanda af hvoru tveggja. Ýmist er teppi eða parkett á gólfum. Alls staðar er stillanleg loftkæling og upphitun, sími, flatskjársjónvarp, öryggishólf og smábar. Á baðherbergjum er hárþurrka og baðvörur. Þráðlaus nettenging er alls staðar á hótelinu, gestum að kostnaðarlausu. 

Morgunverðarhlaðborð með úrvali heitra og kaldra rétta er í veitingasal. Á Carlton-veitingastaðnum er áherslan á baskneska matargerð í bland við alþjóðlega og er matseðillinn breytilegur eftir dögum. Á Bar Americano er ekki amalegt að tylla sér niður í lok dags eða áður en haldið er á veitingastað því að barinn státar af miklu úrvali kokteila auk víns af svæðinu.

Líkamsræktaraðstaðan er ekki stór en vel tækjum búin og þar er einnig gufubað.

Móttakan er opin allan sólarhringinn og þar er bílaleiga, töskugeymsla og þvotta- og þurrhreinsiþjónusta.
Carlton-hótelið er eitt af kennileitum borgarinnar, í sögulegri byggingu við Federico Moyúa-torg. Þess má geta að hótelið var byggt 1919-1926 og var það fyrsta á Spáni með baðherbergjum við öll herbergi, baskneska stjórnin hafði aðsetur þar í spænsku borgarastyrjöldinni 1936 til 1939 og það státar af annarri stærstu glerhvelfingu á Spáni, sem var endurgerð árið 2007. 

Staðsetningin er frábær, veitingastaðir og verslanir í næstu götum og mörg helstu kennileiti, auk gamla bæjarins, í léttu göngufæri. Auðvelt er að komast hvert sem hugurinn leitar því að við hótelið er neðanjarðarlestarstöð og leigubílastæði og strætó sem gengur til og frá flugvellinum stoppar þar einnig.

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 13 km

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun