fbpx The Morgan Hotel | Vita

The Morgan Hotel
4 stars

Vefsíða hótels

Morgan hotel er nýtískulegt og mjög gott 4 stjörnu hótel, frábærlega vel staðsett á Temple Bar hverfi í hjarta Dublinar. 

Á hótelinu eru 61 herbergi, standard, de luxe herbergi og svítur. Á herbergjum hótelsins sem og á hótelinu öllu er blandað saman nokkrum „stílum“ úr arkitektasögunni þar sem lögð er áhersla á að gestir upplífi vellíðan og notalegheit.  Öll herbergi eru vel útbúin með öllum helstu þægindum s.s. sjónvarpi, síma, þráðlausu neti, öryggishólfi, kaffi/te setti, öryggishólfi og hárþurrku.  

Skemmtilegur bar er á hótelinu þar sem allt iðar af lífi þegar líður á kvöld, enda er hótelið staðsett í einum liflegasta hluta borgarinnar Temple Bar hverfi. Úrval veitingastaða og kráa má svo finna í næsta nágrenni. 

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun