fbpx MS Amaragua, Torremolinos | Vita

MS Amaragua, Torremolinos
4 stars

Vefsíða hótels

Hotel MS Amaragua er frábært hótel, nálægt Carihuela, sem er þorp í Torremolinos. Stutt er að ganga að bátahöfninni Puerto Marina. Um 100 m eru í La Carihuela ströndina. 

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn en þar aðstoðar vingjarnlegt starfsfólk gesti við að skipuleggja fríið og gera það sem ánægjulegast. 

Á hótelinu eru 275 herbergi sem skiptast í einstaklingsherbergi, tveggja til þriggja manna herbergi og svítur. Herbergin eru innréttuð í litríkum Miðjarðarhafsstíl, húsgögn eru viðarlituð og flísar eru á gólfum. Herbergin eru rúmgóð og með góðum glugga og einnig eru svalir með útihúsgögnum út frá herbergjunum. Á öllum herbergjum má finna loftkælingu, frítt internet, sjónvarp með gervihnattarásum, síma, míníbar og öryggishólf.

Baðherbergin eru rúmgóð og snyrtileg. Þau eru flísalögð en þar er sturta, hárþurrka og helstu snyrtivörur. 

Á hótelinu er veitingastaður þar sem boðið er upp á svæðisbundna rétti ásamt fjölmörgu öðru góðgæti á girnilegu hlaðborði. Gott er að byrja daginn á því að fá sér góðan morgunverð á veitingastaðnum og njóta útsýnisins út á Miðjarðarhafið. Í hótelgarðinum er bar þar sem hægt er að panta sér svalandi drykki og snarl en einnig er bar í anddyri hótelsins.

Hótelgarðurinn er vel skipulagður og gróinn. Hann er rúmgóður og þar sem hann endar tekur við hlý og mjúk sandströndin sem er eins konar framlenging á hótelgarðinum. Í garðinum er svalandi sundlaug og vaðlaug. Á sundlaugarsvæðinu er frábært að liggja í sólbaði, nóg af sólbekkjum og sólhlífum. Önnur sundlaug er inni á hótelinu og góð heilsulind með gufubaði, sánu, nuddpotti og þar er einnig hægt að panta fjölmargar meðferðir. Einnig er góð líkamsræktaraðstaða á hótelinu. 

Á hótelinu er ýmislegt hægt að finna sér að gera. Hægt er að leigja hjól, vélhjól og bíla í gegnum hótelið og kanna nágrennið á eigin vegum. Á hótelinu er meðal annars tennisvöllur, aðstaða til að leika mínígolf, leikvöllur fyrir börnin og skemmtiatriði fyrir börn og fullorðna. Reglulega er flutt lifandi tónlist fyrir gesti hótelsins. Stutt ganga er á að skemmtilegu bátahöfninni Puerto Marina þar sem smærri skútur og bátar liggja. Þar er mikið mannlíf, bestu sjávarréttar veitingahúsin í Torremolinos og æðisleg strandgata. Carihuela er sjarmerandi þorp og yndislegt að ganga þar um.  Vingjarnlegt andrúmsloft og góður matur.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 9 km
  • Strönd: 100 m í La Carihuela strönd
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Hálft fæði
  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun