fbpx My Story Hotel Tejo | Vita

My Story Hotel Tejo
3 stars

Vefsíða hótels

Fágað hótel á sögulegum stað í Baixa hverfi í Lissabon en segja má að hverfið sé miðja nútímastórborgarinnar Lissabon. Öll helstu þægindi og stutt í allt það helsta sem ferðamenn verða að skoða í borginni.

Á hótelinu eru rúmlega 130 herbergi sem bjóða upp á öll helstu þægindi. Markmiðið er í hvívetna að ýta undir slökun og heilbrigði gesta. Herbergin eru hljóðeinangruð og allt gert til að stuðla að því að gestir geti slakað vel á eftir skoðunarferðir, heimsóknir, verslun eða hvaðeina sem á dag þeirra hefur drifið.

Öll herbergi eru með loftkælingu, sjónvarpi, fríu interneti, öryggishólfi og smábar. Baðherbergin eru með sturtu en þar eru hárblásari og góðar snyrtivörur. 
Á hótelinu er veitingastaðurinn „O Poço“ eða „Brunnurinn“. Þar er boðið upp á hlaðborð af mat og er matargerðin undir innblæstri frá portúgölskum siðum. Réttirnir eru bragðgóðir og andrúmsloftið á veitingastaðnum er yndislegt. Hér, eins og annars staðar á hótelinu, mætir gamli tíminn þeim nýja en meðal einkenna staðarins eru berir steinveggir. Þægileg setustofa er í forsal hótelsins en þar er gott að slaka á og fá sér drykk.

São Jorge’s kastalinn er í um 15 min fjarlægð og einnig Chiado. Helstu viðkomustaðir og kennileiti sem þarf að heimsækja í borginni eru í grenndinni og aðeins er um þriggja mínútna ganga í næstu neðanjarðarlestarstöð.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 30 min
  • Frá miðbæ: Í Baixa hverfi Lissabon
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunmatur

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun