fbpx NH Bruxelles Grand Place Arenberg | Vita

NH Bruxelles Grand Place Arenberg
4 stars

Vefsíða hótels

Glæsilegt hótel á frábærum og rólegum stað við Grand Place torgið í miðborg Brussel. Stutt í verslun, menningu og allar helstu samgöngur. Einnig eru bílastæði við hótelið ef ætlunin er að leigja bíl og skoða sig þannig um í borginni og nágrenni hennar.

Á hótelinu eru 155 herbergi sem skiptast í tveggja manna herbergi og svítur. Hótelið er allt hið snyrtilegasta og andrúmsloftið þar er gott. Herbergin eru björt og stílhrein með ljósmáluðum veggjum. Þau eru búin nútímalegum húsgögnum og parket er á gólfum. Sum herbergjanna eru með svalir. Í öllum herbergjum er loftkæling, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, frítt Internet, míníbar, sími og skrifborð. Einnig áhöld til að laga kaffi eða te.
Baðherbergin eru flísalögð í hólf og gólf. Þar er sturta eða bað, hárþurrka og helstu snyrtivörur.

Morgunverður er borinn fram daglega á girnilegu hlaðborði. Á hótelinu er rekinn svokallaður opinn bar þar sem hver og einn getur blandað sinn eigin drykk. Á virkum dögum er hægt að panta mat af matseðli og láta senda sér upp á herbergið. Annars er stutt í góða veitingastaði, kaffihús og bari í næsta nágrenni hótelsins.

Á hótelinu má finna líkamsræktarherbergi þar sem hægt er að taka vel á því. Einnig er hægt að leigja reiðhjól á hótelinu og hjóla um borgina eða slaka á með  því að skella sér í nudd. Lítil matvöruverslun er rekin á hótelinu og þar má því nálgast helstu nauðsynjar. Einnig er hægt að taka frá bílastæði, gegn gjaldi.

Hotel NH Brussels Grand Place Arenberg hentar vel hvort sem um skemmtiferð eða viðskiptaferð er að ræða. Stutt er að komast í allt það helsta sem ferðamenn sækjast eftir og auðvelt að taka almenningssamgöngur.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 15 km
  • Miðbær: Við Grand Place torgið
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun