fbpx Nh Capri 4nætur og Iberostar Varadero 3 nætur | Vita

Nh Capri 4nætur og Iberostar Varadero 3 nætur
 stars

Hægt er að lesa meira um Capri hér
Hægt er að lesa meira um Iberostar Varadero hér

Capri er gott hótel á frábærum stað í hjarta Havanaborgar. Hin líflega Malecón-strandgata er spölkorn frá hótelinu. Nokkrar mínútur með leigubíl inn í gamla bæinn en mörg helstu kennileiti eru í göngufjarlægð. Í hótelinu eru 220 nýlega uppgerð, rúmgóð herbergi og svítur sem rúma allt að þrjá. Innréttingar eru einfaldar og smekklegar í hvítum og rauðum, grænum eða gráum litum. Flísar eru á gólfum. Öll nútímaþægindi eru til staðar, eins og stillanleg loftkæling, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, öryggishólf og smábar. Þráðlaus nettenging er gegn gjaldi. Á baðherbergjum er sturta, hárþurrka og ókeypis baðvörur. Baðsloppar og inniskór fylgja superior herbergjum og svítum. Á þakveröndinni er útisundlaug með sólbaðsaðstöðu og ómótstæðilegu útsýni yfir hafið og borgina. Þar er einnig hægt að setjast niður við bar og svala þorstanum.

Iberostar Varadero er frábært 5 stjörnu hótel við ströndina í Varadero með öllu inniföldu.  Á hótelinu eru 386 rúmgóð herbergi í 11 byggingum sem standa umhverfis fallegan sundlaugagarð. Tripadvisor telur þetta hótel það besta í Varadero.Öll herbergi eru rúmgóð og með svölum eða palli. Í hverju herbergi er einnig loftræsting, gervihnattasjónvarp, geisladiskaspilari, sími, smábar, te og kaffivél, öryggishólf, straujárn og straubretti og  hárblásari á baði. Í garðinum eru 3 frábærar sundlaugar og sundlaugarbar auk góðrar barnalaugar. Líkamsræktaraðstaða er á hótelinu sem og sauna og nuddpottur. Á hótelinu er einnig heilsulind sem býður upp á hinar ýmsu snyrti-, vellíðunar- og heilsumeðferðir gegn gjaldi. Á hótelinu er allt innifalið.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: Havana: 22 km
  • Flugvöllur: Varadero: 15 km

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Lyfta
  • Nettenging: Gegn aukagjaldi

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Herbergi

Fæði

  • Allt innifalið
  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun