NH Capri og Iberostar Bellavista

Hægt er að lesa meira um Capri hér
Hægt er að lesa meira um Iberostar Bellavista hér
Capri er gott hótel á frábærum stað í hjarta Havanaborgar. Hin líflega Malecón-strandgata er spölkorn frá hótelinu. Nokkrar mínútur með leigubíl inn í gamla bæinn en mörg helstu kennileiti eru í göngufjarlægð.
Í hótelinu eru 220 nýlega uppgerð, rúmgóð herbergi og svítur sem rúma allt að þrjá. Innréttingar eru einfaldar og smekklegar í hvítum og rauðum, grænum eða gráum litum. Flísar eru á gólfum. Öll nútímaþægindi eru til staðar, eins og stillanleg loftkæling, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, öryggishólf og smábar. Þráðlaus nettenging er gegn gjaldi. Á baðherbergjum er sturta, hárþurrka og ókeypis baðvörur. Baðsloppar og inniskór fylgja superior herbergjum og svítum.
Á þakveröndinni er útisundlaug með sólbaðsaðstöðu og ómótstæðilegu útsýni yfir hafið og borgina. Þar er einnig hægt að setjast niður við bar og svala þorstanum.
Iberostar Bellavista er glæsileg hótelsamstæða á fábærum stað við gyllta sandströndina í Varadero.
Í hótelinu eru 827 rúmgóð herbergi og svítur sem rúma frá þremur fullorðnum upp í tvo fullorðna og tvö börn. Innréttingar eru einstaklega stílhreinar og nútímalegar, í hvítum litum og með áklæði í skærum tónum. Flísar eru á gólfum. Loftkæling, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, öryggishólf og lítill ísskápur er í öllum vistarverum hið minnsta. Hárþurrka og baðvörur eru á baðherbergjum. Við öll herbergi eru svalir eða verönd. Þráðlaus nettenging er gegn gjaldi á sérstöku svæði.
Í hótelgarðinum eru fjórar sundlaugar, sólbekkir og sólhlífar, hengirúm og beddar. Beint aðgengi er niður á gylltan sandinn við volgan sjóinn, þar eru sólbekkir og skálar þar sem hægt er að panta sér nudd eða taka þátt í vatnasporti og leikjum sem starfsfólkið sér um.
Fjarlægðir
- Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Bar
- Heilsulind
- Herbergi
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Hárþurrka
Fæði
- Allt innifalið
- Morgunverður