Novotel Al Barsha
Vefsíða hótels
Novotel Dubai Al Barsha er 4 stjörnu hótel í miðbæ Dubai með 465 herbergi og þægilegum aðgangi að helstu stöðum borgarinnar. Fullkomið fyrir þá sem vilja dvelja í hjarta Dubai!
Á hótelinu er mjög góð aðstaða eins og fallegur sundlaugargarður með upphitaðri útisundlaug, sólbaðsaðstöðu og bar þar sem hægt er að fá sér snarl á milli sundspretta eða til að hvíla sig á sólargeislunum. Veitingastaður er á hótelinu þar sem hver vikudagur hefur sinn eiginn matseðil og er reynt að leggja áherslur á mismunandi matargerð frá hinum ýmsu löndum að hverju sinni. Morgunverður er innifalinn og er hann framreiddur af hlaðborði. Fyrir þá sem vilja rækta líkamann er bæði góð líkamsræktaraðstaða á hótelinu ásamt heilsulind.
Herbergin eru snyrtileg og stílhrein, öll eru þau með sjónvarpi, síma, loftkælingu, minibar, te- eða kaffiaðstöðu, hárþurrku og baðherbergjum sem hafa að geyma helstu snyrtivörur og eru ýmist með baðkari eða sturtu.
Novotel Dubai Al Barsha er fullkomlega staðsett á Al Barsha svæðinu í Dubai og býður upp á greiðan aðgang að öllum helstu áhugaverðu stöðunum í borginni og er aðeins í stuttri göngufjarlægð frá neðanjarðarlestarstöðinni. Auðvelt er að komast á alla staði í borginni frá þessu flotta hóteli.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 1,5 klst. akstur
- Miðbær: 12 km.
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Aðgengi fyrir fatlaða
- Bar
- Barnaleiksvæði
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Handklæði fyrir hótelgarð
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Kaffivél
- Minibar
Fæði
- Morgunverður