fbpx Paladim & Alagoamar, Albufeira | Vita

Paladim & Alagoamar, Albufeira
3 stars

Vefsíða hótels

Íbúðahótelin tvö, Paladim og Alagoamar hafa verið sameinuð í eitt hótel - Paladim & Alagoamar. 
Einfalt og þægilegt íbúðahótel í kjarnanum nálægt Brisa Sol og Modelo. Einn kílómetri er niður á fiskimannaströndina í miðbæ Albufeira.

Íbúðirnar eru ýmist stúdíó eða með svefnherbergi og rúma tvo til fjóra gesti. Þær eru einfaldar, flísalagðar, bjartar og rúmgóðar og stórir gluggar opnast út á svalir með húsgögnum. Loftkæling og sjónvarp er í öllum íbúðum. Eldhúskrókur er lítill en vel búinn með örbylgjuofni, helluborði, kæliskáp, ristavél, kaffivél og öðru því sem nauðsynlegt er í hverju eldhúsi. 

Á barnum er boðið up á úrval drykkja og léttra rétta frá morgni til kvölds. Þar eru einnig tvö stór sjónvarpstæki og leikjasalur. Tvær sundlaugar eru við hótelið með sólbaðsaðstöðu, sólbekkjum og sólhlífum og þar er opinn sundlaugarbar. Hægt er að velja um íbúð án fæðis, með morgunverðarhlaðborði eða hálfu fæði.

Albufeira Strip, ávallt kallaður “Laugavegurinn” með öllum sínum veitinga- og skemmtistöðum er í léttu göngufæri.

Það er ekki að ástæðulausu að Albufeira er einn vinsælasti sumarleyfisdvalarstaður í Portúgal. Þar skín sólin skært og strendurnar við Atlantshafið eru hreinar og fallegar.  Albufeira Strip eða Laugavegurinn  er löng gata, annáluð fyrir iðandi mannlíf, bari, kaffi- og veitingahús og verslanir.

Gamli bærinn með göngugötum og úrvali verslana og veitingastaða er uppáhaldsstaður margra og mikil stemmning og mikið um að vera hvort sem er á daginn eða að kvöldi til.

Þeir sem vilja hafa eitthvað meira fyrir stafni en að sitja í sólbaði eða á barnum hafa úr nógu að velja. Reiðhjól má fá leigð á staðnum til þess skoða umhverfið og þjálfa kroppinn um leið. Kylfingar geta valið úr fjölda golfvalla í Albufeira til þess að viðhalda sveiflunni og lækka forgjöfina og ekki skortir heldur sjósportið: Snorkuköfun, sjóskíðabrun og seglbrettabrun eru vinsælar íþróttir við ströndina. Er þá aðeins fátt eitt talið og eitt er víst að engum þarf að leiðast í Albufeira.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 45 km
  • Miðbær: 1 km
  • Strönd: 1 km
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Lyfta
  • Nettenging: Þráðlaus nettenging á sameiginlegum svæðum

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Íbúðir
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi

Fæði

  • Morgunverður
  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun