fbpx Paladim, Albufeira | Vita

Paladim, Albufeira
3 stars

Vefsíða hótels

Vel staðsett þriggja stjörnu íbúðarhótel nálægt gamla miðbænum í Albufeira.

Íbúðirnar eru rúmgóðar og mjög vel búnar með öllum helstu þægindum. Tvenns konar íbúðir eru í boði, stúdíó íbúðir og íbúðir með einu svefnherbergi. Eldunaraðstaða er í öllum íbúðunum auk ísskáps, örbylgjuofns, brauðristar og fleira. Baðherbergin eru mjög fín.

Við hótelið er snyrtilegur sundlaugagarður sem hentar einkar vel fyrir barnafólk, enda er góð yfirsýn garðinn hvaðan sem er. Sérstök barnalaug er í garðinum. Leikherbergi er á hótelinu sem og veitingastaður og bar. Þar má kaupa léttar veitingar í hádeginu og góðan mat á kvöldin.

Hótelið er staðsett rétt við verslunarmiðstöðina Modelo þar sem má finna fjölda verslana.

Snyrtilegt og gott hótel sem kemur á óvart.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 45 km
  • Miðbær: 1 km
  • Strönd: 1 km
  • Veitingastaðir: 50 m

Aðstaða

  • Bar
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Lyfta
  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Nettenging: Tölva með nettengingu í móttöku ( gegn gjaldi)
  • Íbúðir: Studio og íbúðir m/1 svefnherbergi

Vistarverur

  • Verönd/svalir
  • Ísskápur
  • Kaffivél
  • Loftkæling
  • Sjónvarp
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun