fbpx Palm Village Salgados - flottar íbúðir við golfvöll. Golf í Portúgal.

Palm Village Salgados
4 stars

Vefsíða hótels

Palm Village-svíturnar eru fyrsta flokks gisting með "allt innifalið". Í samstæðunni eru 283 rúmgóðar og þægilegar svítur í nokkrum fjögurra hæða byggningum. Svíturnar eru með pláss fyrir allt frá fjórum upp í sex, allar loftkældar með hárþurrku, öryggishólfi og sjónvarpi. Ókeypis þráðlaust netsamband er í öllum vistarverum og á veitingastöðunum. Baðherbergi eru frá einu upp í fjögur eftir stærð svítunnar og stórar svalir á þeim öllum. Einstaklega fjölskylduvæn gisting.

Í um 400 metra fjarlægð frá Palm Village er hinn glæsilegi 18 holu Salgados-golfvöllur með öllum þægindum svo sem búningsaðstöðu, klúbbhúsi, golfverslun með gott úrval, golfbílum o.fl. o.fl.

Salgados-ströndin er ekki nema um 800 m í burtu og alla þá leið er hægt að ganga eftir timburgangbraut  - enda allt á jafnsléttu. Á ströndinni, sem gríðarlega breið og flott eru sturtur og salerni svo og sólbekkir til leigu.  Þar er einnig bar.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 45 km
  • Miðbær: 15 mín í bíl
  • Strönd: 800 m

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Íbúðir
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Íbúðir

Fæði

  • Allt innifalið

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun