fbpx Parque de la Paz hótel við Playa de la Américas eða Ameríska ströndin

Parque la Paz, Playa de las Américas
4 stars

Vefsíða hótels

Parque la Paz er huggulegt fjögurra stjörnu íbúðahótel, rétt hjá “Laugaveginum” við Playa del Las Américas ströndina.

Hótelgarðurinn er með sundlaug, barnasundlaug, fyrirtaks sólbaðsaðstöðu og skemmtidagskrá á kvöldin. Hótelið er á fjórum hæðum og þar eru 221 íbúðir. Það tekur um 5 mínútur að fara í bæinn eða á ströndina.

Á hótelinu eru íbúðir með einu og tveimur svefnherbergjum. Allar fallega innréttaðar, bjartar og mjög snyrtilegar með flísalögð gólf og vönduð húsgögn. Þær eru ágætlega rúmgóðar og vel búnar með síma, sjónvarpi, brauðrist, kaffivél, ísskáp, öryggishólfi gegn gjaldi og svölum eða verönd.
Það er ekki loftkæling í íbúðunum en boðið er uppá viftu inn í svefnherbergjum og í stofu.  

Hótelbyggingin er byggð umhverfis fallegan garð sem er með sundlaug, sólbekkjum (án endurgjalds), barnasundlaug og leiksvæði fyrir börn. Þar er einnig útiveitingastaður og sundlaugarbar, þar sem hótelgestir geta fengið sér létta rétti og drykki. Á kvöldin er boðið upp á skemmtidagskrá.

Í aðal veitingasal hótelsins er matur borinn fram á hlaðborði. Alþjóðlegur matur, en þó með áherslu á matarmenningu heimamanna. Tveir barir eru á hótelinu, annar inni og hinn við sundlaugina.

Biljarðborð og netþjónusta eru einnig í boði.  Íbúðir fyrir fatlaða eru á jarðhæð hótelsins og þarf að panta sérstaklega.
Fæði: morgunverður, með hálfu fæði eða með öllu inniföldu (fullt fæði og innlendir drykkir).

Mjög góður kostur á frábærum stað við amerísku ströndina.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 18 km
  • Frá miðbæ: 5 min gangur
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Þráðlaust net
  • Sundlaug
  • Barnasundlaug
  • Barnaleiksvæði
  • Sundlaugabar
  • Gestamóttaka
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Skemmtidagskrá

Vistarverur

  • Íbúðir
  • Ísskápur
  • Kaffivél
  • Vifta
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi
  • Sjónvarp: Gegn gjaldi
  • Herbergi með aðstöðu fyrir fatlaða - þarf að sérpanta

Fæði

  • Allt innifalið, Hálft fæði, Morgunverður, Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun