fbpx Parque Santiago III, Playa Americas | Vita

Parque Santiago III, Playa Americas
3 stars

Vefsíða hótels

Parque Santiago III er gott og eftirsótt íbúðahótel  á líflegum stað við Amerísku ströndina á Tenerife. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Örstutt er bæði að fara á ströndina eða að skreppa í búðir, á veitingastaðinn eða hvert annað sem hugurinn leitar.

Vart er hægt að hugsa sér betri staðsetningu á hóteli. Verslunarhús, minni verslanir, veitingahús, barir og önnur afþreying er götumegin við hótelið og hinum megin er ströndin. Undir hótelinu er verslunarmiðstöð með mörgum veitingastöðum. Barir, kaffihús og alls konar ferðamannabúðir eru í næsta nágrenni. Þar sem sumar íbúðir hótelsins snúa út að mannlífi aðalgötunnar á Amerísku ströndinni þá verður að gera ráð fyrir því að eitthvert ónæði sé í einhverjum íbúðum.  

Íbúðirnar eru í nokkrum byggingum á Parque Santiago III . Hótelið er mjög stórt svo nokkur gangur getur verið frá gestamóttöku að íbúðum. Ekki eru lyftur í öllum byggingum.

Þarna má einnig finna sundlaugar og fyrirtaks sólbaðsaðstöðu með sólbekkjum sem ekki þarf að greiða fyrir. Á Parque Santiago III er glæsilegt leiksvæði fyrir börnin (10 ára og yngri) með barnalaug og rennibrautum og er barnaleikvöllur fyrir yngstu kynslóðina. Líkamsrækt  er einnig á svæðinu. 

Hægt er að velja um stúdíóíbúðir með eða án garðsýn, íbúðir með einu svefnherbergi og stofu með eða án garðsýn eða íbúðir með tveimur svefnherbergjum og stofu. Í öllum herbergjum er eldhúskrókur eða eldhús, stofa, sjónvarp, sími, öryggishólf og svalir. Hægt að leigja örbylgjuofn  í gestamóttöku. Vifta er í íbúðunum og er hún staðsett í stofunni en þær eru ekki loftkældar. Hægt er að leigja fleiri viftur ef þarf í gestamóttöku.

Íbúðir með tveimur svefnherbergjum eru sumar þannig að annað svefnherbergið er á efri hæð en þá er ekki hurð sem lokar það af frá neðri hæðinni.

Ath. Íbúðir á hótelinu geta verið mismunandi og eru ekki allar innréttaðar eins. Hvorki er hægt að fá fyrirfram staðfest hvernig íbúð maður fær né velja staðsetningu hennar. 

ATH Unnið verður að viðgerðum og málningarvinnu í gestamóttöku Parque Santiago III frá 15.apríl.

Fjarlægðir

  • Veitingastaðir: Allt um kring
  • Frá flugvelli: 19 km.
  • Frá strönd: Við strönd
  • Frá miðbæ: Er í miðbænum á Playa Americas

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun