fbpx Pocillos Playa, Puerto Del Carmen | Vita

Pocillos Playa, Puerto Del Carmen
4 stars

Vefsíða hótels

Þægilegt og gott hótel, á frábærum og friðsælum stað rétt við Los Pocillos-sandströndina í Puerto del Carmen.

Í hótelinu er 95 rúmgóðar og snyrtilegar vistarverur sem skiptast í tveggja manna Standard herbergi og Standard með sjávarsýn, og Super fjölskylduherbergi sem rúma fimm fullorðna eða fjóra fullorðna og tvö börn. Innréttingar eru einfaldar og snyrtilegar. Í öllum herbergjum er loftkæling, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, sími, ísskápur og ókeypis þráðlaus nettenging. Öryggishólf er gegn gjaldi. Á baðherbergjum er baðker með sturtu, hárþurrka og baðvörur. Hægt er að fá barnarúm fyrir allt að tveggja ára án endurgjalds. Svalir eða verönd með borði og stólum er við öll herbergi.

Hér er allt innifalið. Léttur morgunverður er í boði alla daga og hlaðborð í hádegi og á kvöldin. Mismunandi árherslur eru í matargerðinni eftir kvöldum. Bar er á hótelinu þar sem ljúffengir og svalandi drykkir eru í boði og snarl. 
Hótelgarðurinn er flísalagður, þar er sundlaug og nóg sólbekkjum og sólhlífum í kring og hægt er að leigja baðhandklæði. Á kvöldin er lifandi tónlist og skemmtidagskrá fyrir fullorðna. 
Líkamsræktaraðstaða er á hótelinu og hægt er að panta nudd. Í sjónvarpsherbergi er hægt að fylgjast með íþróttaleikjum og hægt er að spila billjarð, borðtennis og pílukast. 
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er hægt að leigja bíl, hjól eða mótorhjól og starfsfólk aðstoðar við að skipuleggja skoðunarferðir.

Snyrtilegt og þægilegt hótel rétt við gyllta Los Pocillos-sandströndina. Rólegheit og afslöppun en veitingastaðir, barir og önnur afþreying í léttu göngufæri.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 6,5 km
  • Strönd: Rétt við Los Pocillos sandströndina
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Lyfta
  • Nettenging
  • Líkamsrækt: Hægt að panta nudd gegn aukagjaldi

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi
  • Loftkæling: og kynding

Fæði

  • Allt innifalið

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun