fbpx Radiance of the Seas | Vita

Radiance of the Seas
4 stars

Vefsíða hótels

Glæsilegt farþegaskip, sem var hleypt af stokkunum 10. Mars 2001 og var allt nýlega endurnýjað. Norðmenn gera skipið út, en það er 90 þúsund lestir og tekur alls 2.502 gesti auk áhafnar. Um borð er klifurveggur, körfuboltavöllur, spilavíti, heilsulind, barir,  veitingastaðir, leikhús, setustofur og sundlaugar. 

Klefar eru  ýmist með tvíbreiðu rúmi eða tveimur rúmum, setkrók með sófa og skrifborði, sjónvarpi (með  flatskjá,)  ísskáp eða smábar - eftir vali, hárþurrku, snyrtiborði og öryggishólfi. Baðherbergi með sturtu  og snyrtivörum.  Herbergisþjónusta allan sólarhringinn.

Sundlaugar, sólbekkir, nuddpottar, barir  og veitingastaðir eru á sólarþilfarinu. Leikir og fjör á daginn og gjarnan  lifandi tónlist.  Heilsulindin býður gegn gjaldi ýmsar dekur- og heilsubætandi meðferðir. 

Aðal veitingasalurinn er á tveimur hæðum með svölum og glæsilegur í allar staði. Þar dekra prúðbúnir þjónar, vínsérfræðingar og vikapiltar við gesti sína.  Aðrir veitingastaðir eru Chops Grill,  sem er ekta amerískur „Diner „ með úrvals hamborgurum, frönskum, laukahringjum og öðru góðgæti.  Sérrétta veitingastaðurinn Portofino er með ítölsku þema. Á þeim veitingastað þarf að panta borð og greiða aukagjald, sem er 25 til 30 dollarar á mann. Auk margra annara veitingastaða.
Windjammer er sjálfsafgreiðslu veitingastaður og afar vinsæll fyrir morgun- og hádegisverð.  Þar má fá bæði salöt, létta rétti, kjöt, fisk og pasta og að sjálfsögðu er nóg af gómsætum eftirréttum. 

Barir eru um allt skipið, hver með sitt þema og er kampavínsbarinn einkar vinsæll.  Hægt er að fá eitthvað að borða og drekka  nánast allan sólarhringinn. Allan daginn eru veitingastaðirnir opnir og hefst með  morgunverði, hádegisverði, kaffihlaðborð síðdegis og kvöldverður . Ef einhver er svangur á nóttunni, er herbergisþjónusta opin allan sólarhringinn.

Eftir kvöldverðinn, sem er tvískiptur ganga gestir í leikhúsið og njóta þess að horfa á glæsilegar skrautsýningar, töfrabrögð eða tónleika og á börunum eru einnig uppákomur.  Fátt jafnast á við litríkar sýningar snillinganna sem þeysa um skautasvellið við dynjandi tónlist.

Fjarlægðir

  • Veitingastaðir: Um borð

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Heilsulind
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Herbergi: klefar með svölum eru í verðflokki D1 og E2

Vistarverur

  • Hárþurrka
  • Verönd/svalir
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Verönd/svalir: Í ákveðnum verðflokki, sjá verð og innifalið

Fæði

  • Fullt fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun