Radisson Blu Elizabete, Riga
Vefsíða hótels

Glæsilegt 4ra stjörnu hótel á 8 hæðum, 228 herbergi, sem opnaði árið 2008. Hótelið er einstaklega fallegt og er byggingin öll klædd með glerplötum þar sem vitnað er í gamlar lettneskar þjóðvísur. Hótelið er frábærlega vel staðsett um 10 mín gang frá gamla bænum.
Gengið er inn í bjarta gestamóttöku og áfram inná fallegan og nýtískulegan bar. Gegnt barnum er veitingasalur, en innaf barnum er setustofa og þaðan bjartur og fallegur morgunverðarsalur. Á sumrin þegar veður er gott er setið úti í bakgarði hótelsins.
Á hótelinu er tækjasalur, en gestir geta notað ESPA heilsulindina á hótel Raidsson Blu Latvia, en að sjálfsögðu gegn gjaldi. Við hliðina á inngangi hótelsins er hraðbanki.
Herbergi eru ágætlega rúmgóð, öll nútímaleg og í fallegum litum. Falleg flísalögð baðherbergi ýmist með sturtu eða baði. Þau eru öll loftkæld (upphituð) og með síma, flatskjá, smábar, hárþurrku,te, kaffi og öryggishólfi án endurgjalds. Frítt, þráðlaust net er á öllu hótelinu.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 15 - 20 mín akstur
- Miðbær: Stutt í miðbæ
- Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring
Aðstaða
- Veitingastaður
- Bar
- Gestamóttaka
- Herbergi
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Hárþurrka
- Loftkæling
- Sjónvarp
- Öryggishólf
Fæði
- Morgunverður