fbpx Real Bellavista, Albufeira | Vita

Real Bellavista, Albufeira
4 stars

Vefsíða hótels

Fjögurra stjörnu hótel þar sem allur aðbúnaður er góður. Smá spölur er í miðbæinn og ströndina en hverfið er fínt og rólegt. Þá gengur frí skutla frá hótelinu í miðbæinn og því er auðvelt að komast á milli staða.
Herbergin eru rúmgóð og hugguleg. Þau eru vel búin öllum helstu þægindum. Herbergin eru þrifin á hverjum degi og starfsfólkið er alúðlegt.

Hótelið hefur fengið ágæta dóma fyrir góða aðstöðu. Sundlaugagarðinn er frekar lítill, en á hótelinu er einnig  innisundlaug og heitur pottur. Þá er heilsulind inni á hótelinu þar sem hægt er að láta dekra við sig svo um munar.

Hótelið hentar mjög vel vinahópum og pörum og er rómað fyrir þægindi og gott viðmót starfsfólks. Það stendur á hæð, þannig að útsyni er gott, en ganga þarf upp brekku til að komast heim.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 45 km
  • Miðbær: 2 km
  • Strönd: 3 km
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Bar
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Nettenging: Gegn gjaldi

Vistarverur

  • Hárþurrka
  • Verönd/svalir
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Sjónvarp
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun