fbpx Roca Esmeralda, gott hótel í Calpe

Roca Esmeralda, Calpe
3 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Roca Esmeralda AR hótela er þriggja stjörnu hótel á besta stað við Levante ströndina í Calpe og í göngufæri við aðal bæjarkjarnann þar sem er að finna fjölda veitingastaða og verslana.

Herbergin eru björt og notaleg og í þeim öllum eru þráðlaus nettenging, sjónvarp, loftkæling, ísskápur, öryggishólf, skrifborð, hárþurrka og svalir.

Í sundlaugargarðinum eru þrjár laugar, þar af ein fyrir börn. Einnig er barnaklúbbur á svæðinu.

Í heilsulindinni eru í boði margskonar heilsu- og vellíðunarmeðferðir, upphituð innilaug, nuddpottur og gufubað auk líkamsræktaraðstöðu. Á hótelinu er hægt að leika tennis og minigolf og í leikherbergi er m.a. hægt að spila billjarð og borðtennis.

Veitingastaðirnir eru tveir, báðir með áherslu á spænska rétti, annar með hlaðborð, en hinn, Los Naranjos, er með grillrétti. Auk þess er þar bar/kaffihús, sundlaugarbar og fjöldi spennandi staða í næsta nágrenni.

Yfir sumarmánuðina (júní - ágúst) er skemmtidagskrá á kvöldin.

Skemmtilegt hótel sem hefur lengi verið vinsælt.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 80 km
  • Frá strönd: 200 m
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Barnasundlaug
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Skemmtidagskrá

Vistarverur

  • Ísskápur
  • Loftkæling
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun