Roger de Lluria
Vefsíða hótels

Þægilegt og fallegt hótel á besta stað í Barcelona, stutt frá Römblunni og Catalunya-torgi.
Í hótelinu er 48 vistarverur, sem skiptast í einstaklingsherbergi, tveggja og þriggja manna og svítur. Innréttingarnar eru klassískar og smekklegar, kóngablá teppi á gólfum og húsgögn úr dökkum viði með ljósu áklæði. Allar vistarverur eru búnar loftkælingu og upphitun, flatskjársjónvarpi með gervihnattarásum, útvarpi, smábar og öryggishólfi. Hraðsuðuketill er á öllum herbergjum nema einstaklingsherbergjunum, sem snúa öll inn í húsagarðinn en önnur ýmist inn í húsagarðinn eða út að götu. Sumum fylgir verönd eða svalir. Þráðlaus nettenging er á öllum herbergjum gestum að kostnaðarlausu.
Heitt og kalt morgunverðarhlaðborð er í boði í veitingasalnum El Mirall. Hægt er að panta forrétti, aðalrétti og eftirrétti af matseðli til að snæða á herbergjum yfir daginn og fram eftir kvöldi. Á setustofubarnum er hægt að tylla sér niður eftir verslunar- og menningarferð dagsins með drykk í hönd og þar er einnig snarl í boði.
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er boðið upp á gjaldeyrisskipti, töskugeymslu, þvottaþjónustu, þurrhreinsun, strauningu og aðstoð við miðakaup. Starfsfólkið leggur mikið upp úr veita góða og persónulega þjónustu.
Hótelið er á frábærum stað í hjarta Barcelona. Passeig de Gracia verslunarstrætið, Catalunya-torg og Ramblan eru í léttu göngufæri og það sama má segja um hin listilega hönnuðu meistaraverk Gaudis, Casa Batllo og La Pedrera, og Gotneska hverfið í elsta borgarhlutanum. Veitingastaðir eru á hverju strái og stutt er í almenningssamgöngur sem flytja ferðalanga að öllum helstu söfnum, merkisstöðum og öðrum kennileitum borgarinnar.
Fjarlægðir
- Miðbær: Í miðbænum
- Flugvöllur: 17 km
- Strönd: Stutt í strönd
- Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring
Aðstaða
- Veitingastaður
- Bar
- Gestamóttaka
- Herbergi
- Nettenging
Vistarverur
- Loftkæling
- Minibar
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Verönd/svalir: Fylgir sumum herbergjum.
Fæði
- Morgunverður