Royal Garden Villas, Costa Adeje
Vefsíða hótels

Royal Garden Villas eru glæsilega hönnuð smáhýsi á mjög rólegu svæði, í útjaðri Costa Adeje, við Costa Adeje golfvöllinn.
Nútímaleg hönnun, friðsælt og fallegt umhverfi og dásamleg heilsulind.
Hótelið samanstendur af 28 sérlega glæsilegum smáhýsum en með hverju og einu þeirra er upphituð einkasundlaug. Húsin eru fyrir tvo til sex einstaklinga og henta því fjölbreyttum hópum. Hvert hús hefur sína einstöku hönnun með handvöldum skrautmunum hvaðanæva af úr heiminum. Húsin eru því með ólíkum en fallegum innréttingum. Í öllum húsunum er loftkæling, ótakmarkað frítt internet, flatskjársjónvarp, öryggishólf, lítið eldhús með örbylgjuofni og míníbar. Baðherbergin eru afar snyrtileg og falleg en þar eru sturta, baðkar, hárþurrka og helstu snyrtivörur.
Morgunverður er borinn fram á Restaurant Jardín, þar sem ilmurinn af kaffi og nýbökuðu bakkelsi fyllir vitin. Einnig er morgunverður eldaður samkvæmt pöntun hvers og eins. Á kvöldin eru bornir fram bragðgóðir gæðaréttir og úrvalið í vínkjallaranum er fjölbreytt. Andrúmsloftið á veitingastaðnum er rólegt og rómantískt og gestir fá að vera í friði. Vikulega er haldin veisla undir berum himni á veröndinni. Á hótelinu er einnig óformlegur kokteilbar við sundlaugina þar sem hægt er að panta sér bragðgóða drykki og njóta utandyra. Hægt er að panta mat í íbúðina ef gestir vilja borða í einrúmi.
Hótelgarðurinn er algjör paradís. Þegar gengið er um þrönga stígana, framhjá villtu blómskrúði, heyrist niður í gosbrunnum og einnig minnir heilsulindin á sig með letilegum en fallegum hljómi úr vindpípum. Í heilsulindinni er hægt að slaka vel á eða bóka fjölbreyttar meðferðir. Í garðinum er glæsileg sundlaug sem flæðir út í sjóndeildarhringinn en úr henni er stórbrotið útsýni. Líkamsræktarstöð er á hótelinu og einnig skvassvöllur.
Royal Garden Villas eru sérstaklega hentug smáhýsi fyrir gesti sem vilja vera út af fyrir sig og lifa í vellystingum í fríinu. Þjónustan á hótelinu er frábær og starfsfólkið allt af vilja gert til að aðstoða gesti við að gera fríið að algjörum draumi.
Fjarlægðir
- Frá flugvelli: 23 km
- Veitingastaðir: Á hóteli og í næsta nágrenni
- Frá strönd: 400 m frá Las Vistas ströndinni
Aðstaða
- Nettenging
- Sundlaug
- Líkamsrækt
- Heilsulind
- Gestamóttaka
- Bar
- Veitingastaður
Vistarverur
- Íbúðir
- Minibar
- Ísskápur
- Kaffivél
- Loftkæling
- Öryggishólf
- Sjónvarp
- Hárþurrka
Fæði
- Hálft fæði, Án fæðis