fbpx Royal River, Costa Adeje | Vita

Royal River, Costa Adeje
5 stars

Vefsíða hótels

Royal River samanstendur af glæsilegum smáhýsum sem henta ólíkum hópum ferðamanna. Þau eru þó aðeins fyrir fullorðna. Frábær valkostur fyrir alla sem vilja gera vel við sig í fríinu. Smáhýsin eru staðsett á rólegu svæði í útjaðri Costa Adeje, við Costa Adeje golfvöllinn. 

Fallegt útsýni, góð heilsulind og öll helstu þægindi. 

Smáhýsin á hótelinu eru 50 talsins og eru af mismunandi stærðum og gerðum. Húsin eru eins til þriggja herbergja og henta því fjölbreyttum hópum ferðamanna.
Hönnun húsanna er nútímaleg og einstök en hún er undir innblæstri frá náttúrulegum efnum sem finnast á eyjunni. Öll smáhýsin eru með loftkælingu, interneti, flatskjársjónvarpi með gervihnattarásum, öryggishólfi og tekatli. Á baðherbergjum er sturta, baðkar og hárþurrka ásamt öllum helstu snyrtivörum.

Á veitingastað hótelsins er borinn fram morgunverður af hlaðborði en einnig er hægt að panta veitingar í smáhýsið. Á kvöldin eru fjölbreyttir valkostir í boði, til dæmis er hægt að fá sér asíska eða franska rétti á veitingastöðum hótelsins, grillstaður er við sundlaug sem er staðsett á þaki hótelisins en við sundlaugina í hótelgarðinum er hægt að panta tapasrétti. Þar er einnig kokteilabar svo hægt er að njóta svalandi drykkja á veröndinni. Einnig er kampavínsbar á hótelinu. 

Hótelgarðurinn er virkilega gróinn og fallegur með útisundlaug í sameiginlegum garði og góð aðstaða til sólbaðsiðkunar. Hvert hýsi er einnig með litla sundlaug. 
Á þaki hótelsins er einnig sundlaug og verönd með fallegu útsýni.

Á hótelinu er líkamsræktarstöð þar sem hægt er að taka vel á því. Þeir sem vilja meiri afslöppun geta notið lífsins í heilsulind hótelsins sem inniheldur upphitaða sundlaug með legubekkjum, sánu, tyrkneskt bað, slökunarherbergi með hengirúmum og margt fleira. Hægt er að bóka fjölbreyttar meðferðir og nudd.

Frábær þjónusta er á hótelinu en starfsfólkið er reiðubúið til að aðstoða gesti við að skipuleggja ferðir og leigja bíla svo þeir geti skoða sig um á þessari fallegu eyju.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 24 km
  • Veitingastaðir: Á hóteli og í næsta nágrenni
  • Strönd: Um 1 km frá Los Morteros ströndinni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Íbúðir
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Minibar: Gegn gjaldi

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun