fbpx Santa Fe smáhýsi, Enska ströndin | Vita

Santa Fe smáhýsi, Enska ströndin
2,5 stars

Vefsíða hótels

Santa Fe Smáhýsi

Santa Fe er samstæða smáhýsa í huggulegum sundlaugagarði. Samstæðan er á hinni vinsælu Ensku strönd eða Playa del Inglés.

Vistarverurnar eru 80 indæl smáhýsi í hefðbundnum spænskum stíl með þremur svefnplássum og er útgengt á einkaverönd úr hverju húsi.

Tvær sundlaugar fyrir fullorðna og tvær fyrir börn eru á staðnum, allar umkringdar vel snyrtum grasflötum og framandi pálmatrjám. Á sundlaugasvæðinu eru einnig flísalagðar verandir  með fjölda sólbekkja og sólhlífa sem gera gestum kleift að láta fara vel um sig í eilífu sólskininu.
Billjarðborð er á staðnum fyrir þá sem hafa gaman af því.

Móttaka er opin allan sólarhringinn og er aðstoð við að leigja bílaleigubíl og skipta gjaldeyri.

Yumbo-verslunarmiðstöðin með verslanir af öllu tagi og veitingahús og bari við allra hæfi og verslunarmiðstöðvarnar CITA og Kasbah eru á Ensku ströndinni. Fyrir þá sem hafa gaman af að taka hring eða tvo á golfvellinum er ekki langt að fara á golfvellina Maspalomas, Meloneras, Salobre eða Anfi Tauro. Þá er vatnsskemmtigarðurinn Aqualand einnig í Maspalomas.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 25-30 km
  • Miðbær: 500 metrar
  • Veitingastaðir: Í göngufæri
  • Strönd: 1,5 km

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Íbúðir: Smáhýsi

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Minibar

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun