fbpx Sheraton Berlin Grand Esplanade | Vita

Sheraton Berlin Grand Esplanade
5 stars

Vefsíða hótels

Gullfallegt hótel á einstökum stað í næsta nágrenni við Tiergarten-almenningsgarðinn, dýragarðinn og sædýrasafnið. Kurfurstendamm-verslunarstrætið og Potsdamer-torg eru í léttu göngufæri. 
Í hótelinu eru í 354 fallega innréttuð og rúmgóð herbergi og 40 svítur, ætluð tveimur fullorðnum, en hægt er að fá aukarúm og samliggjandi fjölskylduherbergi.

Innréttingar eru fallegar hannaðar, nútímalegar og smekklegar, í ljósum við með teppi á gólfum. Gluggar eru nær gólfsíðir og við sum herbergi og svítur eru svalir með einstöku útsýni. Loftkæling og upphitun, sími, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum er alls staðar, auk öryggishólfs fyrir fartölvur, smábars, aðstöðu til að laga te og kaffi, og þráðlausrar nettengingar. Á baðherbergjum er baðker og sturta, baðsloppar og inniskór, hárþurrka, stækkunarspegill og baðvörur. 

Úrval heitra og kaldra rétta er af hlaðborði alla morgna í Elements-veitingasalnum. Á Ellipse er áherslan á alþjóðlega rétti af matseðli í afslöppuðu andrúmslofti og á The Unique Bar Berlin er hægt að gæða sér á snarli þó að aðaláherslan sé á um 100 gerðir ljúffengra drykkja frá öllum heimshornum – þar sem alls kyns krydd eru notuð á óvenjulegan og skemmtilegan hátt. 

Góð heilsulind í hótelinu með líkamsræktaraðstöðu sem er til fyrirmyndar, með nýlegum tækjum. Þar er einnig góð upphituð innisundlaug sem hægt er að taka góðan sprett í, og einnig gufubað og hvíldarhreiður til að fullkomna slökunina. Þar að auki er hægt að panta nudd- og líkamsmeðferðir, auk snyrtimeðferða af ýmsu tagi. 

Móttakan er opin allan sólarhringinn og þar er hraðbanki, auk þess sem boðið er upp á þvotta- og þurrhreinsiþjónustu, farangursgeymslu, bílaleigu og aðstoð við miðakaup.
Sheraton Grand Hotel Esplanade er á besta stað í hjarta borgarinnar, stutt frá Tiergarten-almenningsgarðinum, dýragarðinum og sædýrasafninu. Kurfurstendamm verslunarstrætið og Potsdamertorg eru í léttu göngufæri, hvort í sína áttina þó. Þægilegt er að komast að öllum helstu kennileitum með almenningssamgöngum. 

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 10 km
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring
  • Miðbær: Í hjarta borgarinnar

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Kaffivél
  • Hárþurrka
  • Loftkæling: og upphitun

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun