fbpx Sport Aktiv | Vita

Sport Aktiv
3 stars

Vefsíða hótels

Einfalt og þægilegt fjölskyldurekið hótel á besta stað í Saalbach Hinterglemm, miðja vegu á milli bæjanna tveggja. Stutt er í skíðalyftur og þegar snjór er nægur er hægt að renna sér beint að hótelinu. 

Vistarverur í hótelinu eru 21, rúmgóðar og smekklega innréttaðar og skiptast í 25 fermetra herbergi sem rúma tvo einstaklinga, 35-40 fermetra fjölskylduherbergi fyrir allt að fjóra og 40 fermetra íbúðir með einu svefnherbergi. Teppi eru á gólfum. Herbergin eru búin nauðsynlegum þægindum, eins og upphitun, flatskjársjónvarpi með gervihnattarásum, öryggishólfi og síma. Netaðgangur er í öllum vistarverum. Hárþurrka er á baðherbergjum. Við öll herbergin eru svalir. 

Vinsamlegast athugið að þrátt fyrir að hótelið sé með nettengingu, getur sambandið verið slitrótt og óöruggt.
Þeim sem verða að komast á netið, t.d. vegna vinnu er ráðlagt að taka með sér G-4 tengi.
Þetta á við öll hótelin í bænum.

Morgunverðarhlaðborðið er ríkulegt og hluti af því er tileinkaður lífrænu ræktuðu hráefni. Á kvöldin býður veitingastaðurinn upp á þjóðlega rétti í bland við austurríska auk hlaðborðsrétta þar sem áherslan er mismunandi eftir dögum. Einnig eru grænmetisréttir í boði. Á hótelbarnum er hægt að fá snarl og að sjálfsögðu úrval áfengra og óáfengra drykkja.

Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða og þar er hægt að hvíla lúin bein í þurrgufu, gufubaði og hvíldarhreiðrinu. 

Á Hotel Sport-Aktiv er lögð áhersla á góða og persónulega þjónustu. Hótelið er einfaldur og þægilegur kostur fyrir þá sem vilja gista í rólegu umhverfi þó að stutt sé í skíðalyfturnar og fjörið á börunum og diskótekunum í Saalbach og Hinterglemm en hótelið er staðsett miðja vegu á milli bæjanna tveggja. Rútur flytja gesti að skíðalyftunum og ekki skemmir fyrir að hægt er að renna sér beint úr brekkunum að hótelinu í lok dags. 

​Ferðamannaskattur sem er € 1.30 á mann á nótt greiðist beint á hótel við brottför.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 230 km
  • Veitingastaðir: Á hótelinu

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Verönd/svalir

Fæði

  • Hálft fæði
  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun