Tacande Bocayna Village, Playa Blanca
Vefsíða hótels

Tacande Bocayna Village er gott smáhýsahótel á frábærum stað á Playa Blanca. Fullkomið fyrir þá sem vilja vera út af fyrir sig í fríinu.
Hótelið samanstendur af 48 smáhýsum (e. bungalows) sem eru fyrir allt að fjóra fullorðna. Smáhýsin eru vel búin húsgögnum en hönnun þeirra er í Miðjarðarhafsstíl með björtum veggjum, flísum á gólfum og björtum litum hér og þar. Í húsunum eru tvö rúmgóð svefnherbergi herbergi með fataskápum, fullbúnu eldhúsi með ísskáp, kaffivél og örbylgjuofni. Góð verönd með útihúsgögnum er við allar íbúðirnar. Í smáhýsunum er loftkæling, frítt internet, sjónvarp með gervihnattastöðvum, sími og öryggishólf. Baðherbergin eru flísalögð en þar eru sturta og baðkar, hárþurrka og helstu snyrtivörur.
Á hótelinu er morgunverður borinn fram af girnilegu hlaðborði. Veitingastaðurinn á hótelinu býður upp á alþjóðlega og innlenda rétti og svo eru þrír barir á hótelinu, meðal annars einn í hótelgarðinum en dásamlegt er að sitja við sundlaugarbakkann með svalandi drykk og sleikja sólina.
Hótelgarðurinn er vel hannaður, gróðursæll og með fjölmörgum sólbekkjum sem raðað er í kringum sundlaugarnar sem eru tvær, auk barnalaugar. Einnig er heitur pottur í garðinum. Góð líkamsræktarstöð er á hótelinu, tennisvöllur og heilsulind sem er til dæmis með sánu.
Í heildina er Tacande Bocayna Village hótelið fullkomið fyrir fjölskyldur og aðra ferðahópa sem vilja vera svolítið út af fyrir sig í fríinu hvort sem markmiðið er að slaka á eða njóta alls þess sem eyjan hefur upp á að bjóða. Staðsetningin er frábær enda stutt í næstu verslanir, mannlífið á göngugötunni og fjörið á ströndinni. Veðurfar er hlýtt en milt allt árið um kring og á svæðinu er ótrúlega margt hægt að gera, skoða og sjá. Skemmtigarðar, náttúrufegurð, vatnaíþróttir, fallegar gönguleiðir og áhugaverð menningararfleifð. Það mun því engum leiðast í fríinu á Lanzarote.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 28 km
- Strönd: 600 m í Playa de las Coloradas
- Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Bar
- Barnasundlaug
- Gestamóttaka
- Íbúðir
- Líkamsrækt
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Loftkæling
- Kaffivél
- Verönd/svalir
- Hárþurrka
- Öryggishólf: Gegn gjaldi
Fæði
- Allt innifalið
- Hálft fæði