fbpx Trinity City Hotel | Vita

Trinity City Hotel
4 stars

Vefsíða hótels

Trinity City Hotel er glæsilegt fjögurra stjörnu hótel á frábærum stað í hjarta Dublin, rétt hjá Temple bar hverfinu. Stutt í helstu samgöngur ásamt því að menning og skemmtun eru í göngufjarlægð. 

Á hótelinu eru 262 fallega innréttuð herbergi sem skiptast í tveggja til þriggja manna herbergi og svítur sem sumar eru í georgískum stíl. Herbergin eru snyrtileg, rúmgóð og innréttuð með þægindi og afslöppun gesta í huga. Veggir eru ljósmálaðir, húsgögn eru klassísk og í fallegum litum og teppi eru á gólfum. Öllum herbergjum fylgir frítt internet, flatskjársjónvarp, öryggishólf skrifborð og teketill. Rúmföt eru vönduð. Hægt er að fá herbergi með loftkælingu. Baðherbergi eru flísalögð en þar er baðkar með sturtu, hárþurrka og helstu snyrtivörur. 

Á hótelinu er góður veitingastaður í opnu rými þar sem stemningin er afslöppuð og hægt að virða fyrir sér útsýnið út um stóra glugga. Þar er hægt að njóta kvöldverðar en einnig er hægt að fá þar léttan hádegisverð og kaffi yfir daginn. Fyrir utan veitingastaðinn er upphituð verönd. Á hótelinu er einnig bar og fallega hönnuð gestastofa sem gestir geta slakað á í. Herbergisþjónusta er í boði á hótelinu fyrir þá sem vilja njóta matar og drykkjar inni á herberginu sínu. Fyrir þá sem vilja fara út að borða eru fjölmargir veitingastaðir eru í næsta nágrenni við hótelið.  

Hótelið er frábær kostur fyrir alla þá sem fara til Dublin, sama hvort tilgangur ferðarinnar er að upplifa menningu, skemmta sér eða versla. Grafton Street, verslunargatan, er í göngufjarlægð og sömuleiðis mörg söfn borgarinnar. Aðeins stutt ganga er frá hótelinu að Trinity College og Temple bar hverfið sem heitir eftir hinum fræga Temple bar, er aðeins í nokkurra mínútna göngufjarlægð. Þar er einstakt skemmtanalíf og alltaf gleði. Síðast en ekki síst eru auðveldar samgöngur til og frá hótelinu svo gestir ættu ekki að missa af neinu í þessari skemmtilegu borg.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 14 km
  • Miðbær: Í hjarta Dublin
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Kaffivél
  • Hárþurrka
  • Loftkæling: Hægt að fá herbergi með loftkælingu

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun