fbpx Tryp Madrid Gran Vía | Vita

Tryp Madrid Gran Vía
3 stars

Vefsíða hótels

Í hótelinu eru 175 smekklega innréttaðar vistarverur. Flest herbergin eru tveggja manna en einnig er hægt að fá fjölskylduherbergi sem rúma allt að fjóra. Sum þeirra eru með útsýni yfir borgina. Herbergin eru hljóðeinangruð og búin öllum nútímaþægindum eins og loftkælingu og upphitun, gervihnattasjónvarpi, síma og öryggishólfi. Á baðherbergjum er hárþurrka og baðvörur fylgja. Endurgjaldslaus þráðlaus nettenging er á öllum herbergjum.

Í veitingasalnum sem kenndur er við Ernest Hemingway er boðið upp á ríkulegt morgunverðarhlaðborð, með bæði heitum og köldum réttum, og þar er hægt að fá sér kaffi og með því yfir daginn. Í setustofunni er hægt að hvíla lúin bein milli verslunar- og skoðunarferða og þar eru drykkja- og snarlsjálfsalar.

Móttakan er opin allan sólarhringinn og starfsfólkið er boðið og búið að aðstoða við að leigja bíl eða skipta gjaldeyri og boðið er upp á þvottaþjónustu.

TRYP Madrid Gran Vía hótelið er einfaldur og góður kostur fyrir þá sem kjósa gistingu á frábærum stað við eina aðalverslunargötuna, mitt í iðandi mannlífi og menningu borgarinnar. Fjöldi veitingastaða og næturklúbba er rétt við hótelið. Aðeins tekur 10 mínútur að rölta að dómkirkjunni og risatorginu Plaza Mayor og korter að Retiro-lystigarðinum og Prado, Reina Sofia og Tyssen-Bornemisza söfnunum. Jarðlestastöð er rétt við hótelið.

Fjarlægðir

  • Miðbær: Í miðbænum
  • Flugvöllur: 15 km
  • Veitingastaðir: Allt um kring

Aðstaða

  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun